Sameiningin - 01.11.1901, Blaðsíða 7
135
veriö úr , ,parkínum“ til aö flytja okkr þangaö. paö eru bæöi
skrautlegir og þægilegir vagnar, og ganga fjórir hestar fyrir
hinum smærri, en sex hestar fyrir hinum stœrri. í smærri
vögnunum aka átta manns saman, en í hinum tólf. Tafar-
laust var lagt á staö frá Cinnabar og ekið átta mílur. þá er
maðr kominn áfyrsta áfangastaöinn í ,,parkinum“—Mammoth
Hot Springs. þar er hótel, og snæddum við þar dögurö.
Eg veit, að mörgum er forvitni á aö heyra eitthvað um
Yellowstone Park; og vildi eg feginn geta lýst því landi, en
þaö er helzt ómögulegt að lýsa því, allra sízt í stuttu máli.
Eg skal að eins minnast á örfátt af ótal-mörgu, sem segja
mætti um þetta undraland.
Yellowstone Park liggr í norðvestrhorninu áríkinu Wyom-
ing aö mestu, en yztu jaðrar þesss ná þó bæöi inn í Mont-
ana og Idaho. Vegalengd þangað frá St. Paul er rétt um
1,000 mílur. Landspilda þessi er 62 mílur á lengd frá norðri
til suörs og 54 mílur á breidd frá austri til vestrs. þaö nær
yfir 3,412 ferhyrningsmílur. Meö sérstakxá löggjöf kongress-
ins 1872 var land þetta urn aldr og æfi gjört aö ríkiseign, og
er þaö algjörlega undir stjórn þingsins, sem árlega leggr fram
mikla peninga-upphæö til vegagjörðar og hirðingar á því.
Allt áriö um kring eru þar flokkar hermanna, sem líta eftir aö
ekkert sé þar skemmt, né skotin dýrin þar. Að eins fjóra
sumarmánuðina er ,,parkinn“ opinn fyrir ferðafólk.
Ferðin um Yellowstone Park tekr sex daga, ef farið er
eftir hinni venjulegu fei'ðaáætlan. Vilji maðr haga feröum
sínum öðruvísi og vera lengr, borgar maör átta dollara fyrir
hvern dag, sem um fram er. En þessir sex dagar nœgja til
að sjá allt hið helzta, ef maðr notar vel tímann. Alls ekr
maðr í ,,parkinum“ 152 mílur. Vegrinn, sem stjórnin hefir
látið gjöra þar, er sannkallað stórvirki. Hann liggr æ hærra
eftir því, sem sunnar dregr, þar til kornið er um 10,000 fet
yfir sjávarmál. Sumsstaðar er vegrinn höggvinn inn í kletta
og ekið eftir fárra feta breiðum stöllum; er þá stundum ann-
ars vegar himinhátt hamraberg, en hins vegar hyldýpis gjá.
En þó sumum þ}Ti stundum nóg um, er þetta þó engin sérleg
glæfraför, og ökumaðrinn stýrir hestunum af mikilli list.