Sameiningin - 01.11.1901, Blaðsíða 10
ög spýtist viö og viö upp um gatiS; því stœrri sem skálarnar
eru, því hærra spýtist upp úr. þetta er þá kallaö ,,Baby
Geysers“ (Geysa-ung-ar), og minnir þetta mig á það, sem
mörgum þykir tilkomumest í Yellowstone Park, geysana.
Hvergi í heimi eru eins margir geysar saman komnir eins
og í Yellowstone Park, og hvergi eru þeir eins stórir eins og
þeir stœrstu þar. þeir eru oftast margir á sama staö, en svo
langt bil á milli hyggða þeirra. Auövitaö gjósa þeir ekki allir
í einu og enginn einn maör getr séö þá alla. Margir geysanna
gjósa með reglubundnu millibili, og getr maðr því setið um þá.
,,Excelsior“ heitir stœrsti geysirinn í Yellowstone Park og er
hann sagðr stœrstr í heimi. En því miðr lætr hann ekkert á
sér bera á síðari árum; hefir ekki gosið svo menn viti síðan
1881. Næstir að stœrð eru þeir ,,Giant“, ,,Giantess“,
,,Beehive“ og ,,01d Faithful11. þeir eru allir sííellt á ferð-
inni. ,,Giant“ spýr vatninu 250 fet upp í loftið, ,,Beehive“
200 fet, og hinir tveir, sem nefndir voru, nálega eins hátt.
Öllum þykir víst vænzt um ,,01d Faithful“, því hann ber nafn
með rentu og bregzt manni aldrei. Hann gýs nákvæmlega
einu sinni á hverri klukkustund. Fyrst heyrast dunur og
dynkir niðri í skálinni, þegar hann er að taka sig til; svo fara
smámsaman að koma stórar hvítfyssandi gusur af sjóðanda
vatni upp úr skálaropinu, og svo allt í einu gýs hann í háa
loft, þráðbeint upp í loftið nærri 200 fet. Svona stendr úr
honum strokan 5—6 mínútur í einu. Hálfri annarri milíón
gallóna af vatni spýr hann í hvert sinn. Smámsaman fer
ofsinn í honum að sefast og hann missir mátt sinn, sígur hœgt
og hœgt og hverfr ofan í skálina, og er þá borð á henni á
eftir. Fjórum sinnum sá eg ,,01d Faithful“ leika leik sinn,
og þótti mér ávallt tilkomumeira í hvert sinn. Marga fleiri
geysa sá eg í algleymingi, en sleppi að lýsa þeim.
Að eins einu undri enn skal eg reyna að lýsa. það er hin
mikla gjá—,,The Grand Canyon“. Hún er eitthvað 20 mílna
löng, og er varið nærri heilum degi til að skoða hana. Er það
þó aðallega um svo sem fjögra mílna svæði, að farið er. þar
sem hún er mest er hún hér um bil 1,200 feta djúp, undr mjó
að neðan, og rennr þar Yellowstone-áin og sýnist svo lítil