Sameiningin - 01.11.1901, Qupperneq 12
140
fullkomlega. Kvöldið kom og læddist gegn um furuskóginn í
kringum oss. Eg gekk hœgt og varlega út á klöpp—hún
var ýmist blóðrauð eða ljósrauð—, og horfði niðr í dýpsta
dýpið. Ognú veit eg, hvað það er að sitja krýndr uppi í
dýrð sólsetrsins".—Lang-frumlegust er þó hugsanin hjá gamla
dr. Talmage, er honum datt í hug, þegar hann horfði yfir
gjána. Hann segir: ,,Hvílíkr salr þetta væri til að halda í
hinn síðasta allsherjar dóm! Sjáið þennan hamramma foss
og regnbogana við fœtr hans! þegar þetta volduga vatnsfall
svo stöðvaðist og storknaði í umbrotum hins mikla dags, hví-
líkr staðr væri það þá fyrir hinar skínandi fœtr dómara lifenda
og dauðra að standa á, og kasta svo regnbogunum eins og
kórónum að fótum hans! A botni þessarar stóru gjár er
pallr, sem allar þjóðir heimsins gæti staðið á, en herskarar
himinsins gæti setið á hinum ótal-mörgu veggloftum hringinn
í kring í gjánni! Og hversu básúna höfuðengilsins myndi
bergmála um öll þessi skörð, hella og hæðir! Hví skyldi ekki
dagrinn mesti, sem heimrinn nokkurn tíma sér, útlíða í hinu
stórkostlegasta útsýni, sem almættið hefir skapað?“
Engar samanhangandi hugsanir á eg sjálfr frá því eg stóð
þarna á ,,Inspiration Point“. Eg sat þar lengi aleinn—og í
rauninni þarf maðr að vera aleinn til þess að geta fullkomlega
notið slíkrar stundar. Eg man það eitt, að heilög lotning var
í hjarta rnínu og eg kenndi ómótstœðilegrar löngunar til að
biðja guð. Mér fannst hann þá vera svo nærri mér. Eg
man það líka, að eg hafði upp orð Jónasar Hallgrímssonar:
,,Drottins hönd þeim vörnum veldr.
Vittu, barn, sú 'nönd er sterk.
Gat ei nema guð og eldr
gjört svo dýrðlegt furðuverk. “
Eg þori nú ekki að taka upp meira rúm til að lýsa
Yellowstone Park. Óhætt held eg mér sé að fullyrða það, að
enginn, sem þangað ferðast, sjái eftir því. Viðrgjörningr allr
er hinn bezti á hótelunutn í ,,parkinum“. A kvöldin er þar
skemmt með söng og hljóðfœraslætti, svo ekki þarf manni að
leiðast þær stundirnar, sem maðr ekki er að skoða sig um.
Ekkert get eg hugsað mér meir hressanda og lífganda fyrir