Sameiningin - 01.11.1901, Side 14
haldiö áfram hér í Winnipeg í sambandi viö ,,Sameininguna“.
þau tvö blöð renna þó ekki saman í eitt, að minnsta kosti
ekki fyrst um sinn, hvaö sem seinna kann að verða. En þau
verða send út sameiginlega og seld bæði í einu fyrir sama
verð sem áðr hefir verið borgað fyrir ,,Sameininguna“ eina.
Stœrð ,,Kennarans“ verðr þó hér eftir minni en áðr, —hvert
nr. hálf örk eða 8 bls. Sökum fjarlægðar frá staðnum, þar
sem ,,Kennarinn“ verðr út gefinn framvegis, treysti séra
Björn sér ekki með neinu móti að hafa ritstjórn þess blaðs á
hendi lengr. I hans stað tekr séra N. Steingrímr þorláksson
það verk að sér. ,, Kennaranum “ verðr hér eftir eins og
áðr haldið úti í nafni kirkjufélags vors kristindómsfrœðslu
barna og unglinga til stuðnings og sérstaklega verki því, sein
verið er að vinna í sunnudagsskólunum. Sunnudagsskóla-
lexíur verða því framvegis skýrðar þar. Og mun ritstjórinn
gjöra sér far um að vanda þær skýringar sem bezt hann getr
eftir föngum.
En sökum þess að ráðstöfun þessi, framtíð ,,Kennarans“
viðvíkjandi, varð ekki gjörð fyrr en svo seint—-um mánuð
þennan miðjan—, getr það blað nú ekki komið út fyrr en í
Desember. En þá fylgir það væntanlega með ,,Sam. “ og
kemr með lexíur fyrir sunnudagsskólana frá nýári. Séra
Steingrímr býst við að fara þar eftir einni af lexíuröðum þeim,
sem General Council-menn hafa útvalið í sunnudagsskóla-
ritum sínum, og það einmitt þeirri lexíuröð, sem stöðugt heúr
að undanförnu verið farið eftir af séra Birni í,, Kennaranum “.
Vér vonum, að núverandi áskrifendr ,,Sameiningarinnar“
kunni að meta það, að hér eftir fá þeir ,,Kennarann“ algjör-
lega ókeypis, og sýni þá líka þakklæti sitt verklega með því
að borga blað vort greiðlega, en einnig með því að útvega
því nýja kaupendr. Vér vonum og, að þeir allir, sem að
undanförnu hafa keypt og notað ,, Kennarann ‘ ‘, finni til þess,
að þeir þurfa enn á hjálp hans að halda við sunnudagsskóla-
kennsluna og aðra kristindómsfrœðslu barna, og gjörist svo
kaupendr ,,Sam. “, þótt ekki hafþ þeir verið það áðr. Allir
slíkir snúi sér í því efni til hr. Ólafs S. þorgeirssonar (P. O.
Box 689, Winnipeg, Man., Canada), sem er einn í útgáfu-
pefnd blaðs vors og féhirðir þess.