Sameiningin - 01.11.1901, Qupperneq 15
í43
Séra Björn B. Jónsson er eins og rnenn vita einn af þeínl
mönnum, sem í kirkjufélagsins nafni annast um útgáfu
,,Sameiningarinnar“. En einnig á annan hátt er hann ná-
knýttr viS blað vort. Hann hefir í seinni tíS ritað mikið fyrir
,, Sam. ‘ ‘, margar ágætar greinir um eitt hinna merkilegustu
°g þýðingarmestu ágreiningsmála, sem nú eru uppi í kristn-
inni, — málið um biblíu-kritíkina. Fyrir það erum vér hon-
um hjartanlega þakklátir og væntanlega allr þorri lesenda
vorra. Hann ætlar ekki að hætta að styðja blaðið á þann
hátt. það geta allir séð á því, að nú einmitt í þessu nr.i
,,Sam. “ kernr frá honum löng og góð grein, fyrri hluti rit-
gjörðar út af ferð þeirri, er hann fyrir skemmstu fór í missí-
ónar-erindum vestr að Kyrrahafi. þessi þáttr ritgjörðar hans,
sem nú birtist — um náttúru-undrin óviðjafnanlegu í Yellow-
stone Park, verðr víst almennt lesinn af fólki með mestu
ánœgju. það að séra Björn þvert á móti tilætlan vorri losn-
aði við ritstjórn ,,Kennarans“ verðr að því leyti til góðs, að
hann fær nú meiri tíma en áðr til þess að rita fyrir ,,Sam. “
Vér tökum þetta fram að nokkru leyti fyrir þá
sök, að vér höfum komizt að því, að sumir góðir
safnaðarmenn innan kirkjufélagsins hafa lent í þeim
misskilningi, að ráðstöfun sú, sem gjörð hefir verið fyrir
útgáfu ,,Kennarans“ framvegis, sé að óvilja séra Björns. En
af þeim misskilningi hefir það leitt, að stöku áskrifendr
,,Sam. “, sem nú eru, hafa haft um orð að segja því blaði
upp, að líkindum gangandi að því sem vísu, að „Kennar-
^^“32^^0 0654^ og að ,,Sam. “ væri völd að dauða hans.
Nei—,,Kennarinn“ á ekki að deyja. En þessi misskilningr
út af fyrirhuguðum vistaskiftum hans þarf endilega að deyja
út, og fyrir skýringar þær á málinu, sem nú eru lagðar fram
fyrir lesendr vora, á sá misskilningr að geta dáið út, og mun
engum þykja vænna um að sú verði reyndin en einmitt séra
Birni.
Aframhaldið af sunnuðagssskóla-lexíum þeim, sem ,,Kenn-
arinn“ að undanförnu hefir haft meðferðis, er þetta fram
að nýári: