Fréttablaðið - 31.12.2010, Page 22

Fréttablaðið - 31.12.2010, Page 22
Skattar, gjöld og Staðgreiðsla 2011 Staðgreiðsla skatta 2011 er reiknuð í þremur þrepum. Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir: Af fyrstu 209.400 kr. ........................... 37,31% Af næstu 471.150 kr. ........................... 40,21% Af fjárhæð umfram 680.550 kr. ......... 46,21% Frá reiknuðum skatti dregst persónuafsláttur, sem er 44.205 kr. Sjómannaafsláttur er 740 kr. á dag. Laun frá fleiri en einum launagreiðanda Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að passa að rétt hlutfall sé notað við útreikning á staðgreiðslu. Fari laun yfir 209.400 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna 40,21% staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,21%. Tryggingagjald Tryggingagjald er 8,65%, frá 1. janúar 2011. Fjármagnstekjuskattur Frá 1. janúar 2011 er skattur á fjármagnstekjur 20%. Framtal og álagning 2011 Barnabætur Fjárhæðir barnabóta eru óbreyttar frá fyrra ári. Skerðing vegna tekna verður 3% með fyrsta barni (var 2% áður), 5% með öðru barni og 7% með þremur börnum og fleiri. Þá eru greiðslur með hverju barni yngra en 7 ára nú tekjutengdar en voru það ekki áður. Þær skerðast með hverju barni um 3% af tekjum umfram 1.800.000 kr. hjá einstæðum foreldrum og 3.600.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki. Vaxtabætur Hámark vaxtabóta fyrir einhleyping verður 400.000 kr. (var 246.944 kr.), fyrir einstætt foreldri 500.000 kr. (var 317.589 kr.) og fyrir hjón/sambúðarfólk 600.000 kr. (var kr. 408.374 kr.). Skerðing vegna tekna verður 8% af tekjustofni (var 6%). Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að skerðast við nettóeign 4.000.000 kr. (var 7.119.124 kr.) og falla niður þegar eignin nær 6.400.000 kr. (var 11.390.599 kr.). Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við nettóeign 6.500.000 kr. (var 11.390.599 kr.) og falla niður þegar eignin nær 10.400.000 kr. (var 18.224.958 kr.).

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.