Fréttablaðið - 31.12.2010, Page 55

Fréttablaðið - 31.12.2010, Page 55
Á hverju ári sinnum við á annað þúsund hjálparbeiðnum af öllum gerðum frá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum. Meðal þessara fjölmörgu útkalla má nefna aðstoð vegna óveðurs, ófærðar, sjóslysa, flóða og skipsstranda, björgun búpenings auk fjölda annarra viðvika. Björgunarsveitir okkar fjármagna starfið með margvíslegum hætti en flugeldasalan er langmikilvægust og skiptir sköpum í rekstri okkar. Einkaaðilar hafa seilst inn á þessa aðalfjáröflun okkar í von um hagnað í eigin vasa. Þetta þykir okkur slæm þróun og hvetjum við fólk til þess að hugsa fyrst og fremst um eigið öryggi og kaupa flugeldana hjá okkur. Styddu þá sem eru tilbúnir að styðja þig – kauptu flugeldana af björgunarsveitunum! Hvað er þinn flugeldasali tilbúinn að leggja á sig fyrir þig? Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar aðstoða vegfarendur í aftakaveðri á Eskifirði 16. desember sl. Aðalbakhjarlar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru:

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.