Fréttablaðið - 31.12.2010, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 31.12.2010, Blaðsíða 58
50 31. desember 2010 FÖSTUDAGUR50 menning@frettabladid.is Þrátt fyrir kreppu dregur lítið sem ekkert úr bókaflóðinu fyrir hver jól. Hér verður skyggnst yfir hvað skolaði á fjörur okkar í ár. Ef til vill er ótímabært að ætla að gera upp bókaárið áður en það er svo mikið sem farið að fjara undan bókaflóðinu og fæstum hefur gefist tími til að lesa nógu mikið af útgáfu ársins til að fá heildstæða yfirsýn yfir árið sem er að líða. Sölulistar ársins voru gefnir út á miðvikudag. Mest seldu skáldsögur ársins voru eins og undanfarin ár reyfarar, Furðustrandir eftir Arnald Indriðason er mest selda skáldsaga ársins en á hæla hans fylgir Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur. Fyrsti áratugur 21. aldarinnar var áratugurinn sem íslenski krimminn festi sig í sessi og ekkert bendir til þess að hann sé á útleið. Meira vafamál er hins vegar hvort Arnaldur Indriðason verði í fararbroddi íslenskra glæpasagnahöfunda mikið lengur. Hann verður það vissulega ef hann kýs, en Arnaldur hefur sýnt bæði metnað og færni til að skrifa annars konar skáldskap. Í Furðuströndum fær sá metnaður meiri útrás en áður og gefur fleirum en þeim lesanda sem hér ritar fyrirheit um að þess sé ekki langt að bíða að Arnaldur leggi glæpina á hilluna – tíma bundið að minnsta kosti – og skrifi sína fyrstu „almennu“ skáldsögu. Aftur til fortíðar Óvæntasti „smellur“ ársins er tvímælalaust Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson; erótísk ástarsaga úr sveitinni sem spurðist afar vel út. Þeir sem hrifust af sérstöku orðfæri bókarinnar ættu að verða sér úti um fyrstu skáldsögu Bergsveins, Landslag er aldrei asnalegt frá 2003. Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna eru ágætlega lukkaðar í ár; allt sterkir titlar sem koma til greina en ég spái því að hnossið hreppi annað hvort Bergsveinn eða Gerður Kristný fyrir hina firnasterku Blóðhófni, þar sem hún endur- segir sögu nöfnu sinnar Gymis- dóttur úr Skírnismálum. Af öðrum bókum sem hefðu gjarnan mátt fá tilnefningu vil ég nefna Skáldsöguna um Jón eftir Ófeig Sigurðsson, Ljósu Kristínar Steins dóttur og Doris deyr eftir Kristínu Eiríksdóttur. Nokkuð hefur verið rætt um fjarveru kreppubóka í bókaflóðinu í ár. Erfitt er að segja til um hverju sætir. Kannski er fólk dauðleitt á að lesa um kreppuna og/eða rithöfundar leiðir á að skrifa um hana. Eitt af sérkennum bókaársins sem nefnt hefur verið er endurlit til fortíðar; ófá skáldrit þetta árið fjalla um liðna tíð eða gera sér mat úr menningararfinum með einum eða öðrum hætti. Ævisögur settu minni svip á árið en oft áður. Ævisaga Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson ber höfuð og herðar yfir aðrar ævisögur á sölulistum ársins. Ævisögu Gunnars Eyjólfssonar, Alvara leiksins eftir Árna Bergmann, hefur verið vel tekið en viðbrögðin við ævisögu stórsöngvarans Kristjáns Jóhannessonar, Á valdi örlaganna, hljóta að teljast vonbrigði. Skotið yfir markið Markaðsklúður ársins hlýtur hins vegar að vera innreið N1 á bókamarkaðinn, eða öllu heldur útreið. Bók Sölva Tryggvasonar um Jónínu Benediktsdóttur kvað hafa selst í um 5.000 eintökum. Undir venjulegum kringumstæðum myndi það teljast nokkuð góður árangur. N1 skaut hins vegar hátt yfir markið með því að prenta bókina í tíu þúsund eintökum. Enn verr gekk með bók Björgvins G. Sigurðssonar, sem mun hafa selst í nágrenni við 2.000 eintök en var prentuð í sjö þúsund. Forstjóri N1 ber höfuðið hins vegar hátt og segir tapið ekki nema brot af veltu fyrirtækisins. Bíleigendur væru hugsanlega þakklátir ef það brot væri notað til að halda álagningu á eldsneyti í lágmarki, frekar en að ofprenta bækur. Þýðingar Nokkur klassísk öndvegisverk komu út í íslenskri þýðingu á árinu, svo sem Gleðileikurinn guðdóm- legi eftir Dante í þýðingu Erlings Halldórs sonar og Silas Marner eftir George Eliot í þýðingu Atla Magnússonar. Tvær nýjar Shake- speare-þýðingar litu dagsins ljós; Lér konungur í þýðingu Þórarins Eldjárns og Ofviðrið í þýðingu Sölva Björns Sigurðs sonar. Sú síðar nefnda hefur að vísu ekki verið gefin út á bók en vonandi verður úr því bætt á nýju ári. Tvær aðrar þýðingar er vert að minnast sérstaklega á: Kaffihús tregans eftir Carson McCullers í þýðingu Óskars Árna Óskarssonar og sýnilegt myrkur eftir William Styron í þýðingu Ugga Jóns sonar. Fátt var um fína drætti í þýddum samtímabókmenntum, sem ein- kenndust öðru fremur af óhóf- legu framboði á norrænum saka- málasögum. Mestur akkur var í Hreinsun Sofi Oksanen, sem Sig- urður Karlsson þýddi, og þýðingu Njarðar P. Njarðvík á Vetrarbraut eftir Kjell Espmark. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í útgáfu ársins, sem er enda að stærstu leyti bundin við síðasta hluta ársins. Oft er amast við jóla- bókaflóðinu og útgefendum legið á Blautlegt svarbréf og blóðljóð Gerðar BERGSVEINN, GERÐUR OG ARNALDUR Bergsveinn og Gerður eru líklegust til að hreppa Íslensku bókmenntaverðlaunin í ár að mati greinarhöfundar, sem veltir líka fyrir sér hvort Furðustrandir séu til marks um stefnubreytingu á höfundarferli Arnaldar Indriðasonar. Bergsteinn Sigurðsson skrifar um bókaárið Eitt af sérkennum bókaársins sem nefnt hefur verið er endurlit til fortíðar; ófá skáldrit þetta árið fjalla um liðna tíð eða gera sér mat úr menningararfinum með einum eða öðrum hætti. MAÐUR OG KONA Á RÚV Í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins verður upptaka á hinum sígilda alþýðuleik Manni og konu flutt í Útvarpsleikhúsinu á sunnudag klukkan 13. Upptakan er frá því í desember 1960 og fer Brynjólfur Jóhannesson með hlutverk séra Sigvalda, en frammistöðunnar er minnst sem hans mesta stjörnuleiks. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 13-15 Sími: 527 2100 www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík JANÚAR 2011 Mojito Súldarsker Sirkus Sóley Ferlegheit Sveinn skotti SÍÐUSTU SÝNINGAR TÓNLEIKAR FRUMSÝNING 14. JAN. 16 20 27 28 16 21 23 7 15 22 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.