Sameiningin - 01.09.1906, Blaðsíða 4
196
velsældar, ríör þeim sannarlega á því á þessum tíma aö lmgsa
vandlega um þetta mál í sambandi viö kristindóminn sinn. Skylt
cr aö sjálfsögöu aö þakka guöi fyrir þaö, hve stórkostlega mikil
breyting til batnaðar er orðin á efna-ástœðum alls þorrans af
fó.lki voru hér um slóðir frá því, sem áðr var, hve frábærar
framfarirnar hafa í því tilliti veriö nú einkum á allra síðustu
árum. En lrins vegar er fyrir þá alla, sem hluttakandi eru í
blessun þeirra framfara og af alvöru vilja vera kristnir menn,
lífsnauðsyn að halda augum sínum a.lopnum fyrir freistingar-
hættunum nýju og auknu, er hin aukna og vaxandi velmegan
óhjákvæmilega hefir í för með sér.
Til þess ætti hin áminnzta þýdda grein í þessu „Sam.“-
blaði ágætlega að geta stutt þá, sem lesa hana í réttum anda.
Hættan við það að vilja verða ríkr.
(Úr „Sunday School Times“.ý
Að grœða fé telr al.lr þorri nútíðarkynslóðarinnar í lieim-
irium sig hafa rétt til, og þaö er jafnvel talið megin-tilgangr líís-
ins. Sennilega hefir sama skoðan ávallt verið ráðandi, og búast
má viö, að svo verði einnig framvegis langa-lengi. í>ví þetta
cr ekki aö eins skoðan þeirra manna, er vitanlega lifa án guös
í heiminum cg að eins hugsa um eigin hagsmuni, heldr
v’rðast og flestir alvarlega kristnir menn vera sömu-
sannfœringar án þess að gjöra sér af því neina samvizku-
sök. Klerkar jafnt og leikmenn halda því hiklaust fram, að
])aö sé ekki að eins réttr. heldr lika skylda aö setja fjárgróða í
brodd fylkingar þeirra hluta, sem unnið skuli að, og að memi
eigi að nota sérhvert tœkifœri, er til þess býðst aö ná haldi á
slíkum gróða, og hrúga saman eins miklum peningum og þeim
cr með heiðarlegu móti unnt. Engu að síðr er þeim vel kunn-
tigt um marg-endrtekin varnaðarorð í því sambandi um alla
biblíuna, 0g á móti hverju slíku varnaðarorði hinna helgu ritn-
inga sjá þeir í daglega lífinu tíu varúðarbendingar.
Er ekki þetta undarlegt ástand? Myndi það ekki vera
nærri því algjör undantekning frá því, sem annars tiðkast í lífí
kristinna manna? Er það ekki á því svæði nokkurn veginn
einstoett? Hvernig verðr grein fyrir því gjörð? Almennt er
viö það kannazt innan kristninnar, hve nauðsynlegt sé að sinna
öllum öðrum varúðarorðum Krists, og fúsir eru menn margir
til að tryggja líf sín með því að ganga í algjört bindindi til þess
aö halda sér frá hættum óhófseminnar, og á líkan hátt að gæta
þess vandlega í framkomu sinni að öðru leyti, að leyfa sér ekki