Sameiningin - 01.09.1906, Page 18
210
Fandr: — Sunnudag 9. þ. m. eftir guösþjónustu í kirkju
St. Páls safnaöar áttu fulltrúar allra safnaöa prestakallsius
fund meö sér, og stóð hann mestan seinni hluta dags. Voru þar
x-œdd ýms sameiginleg mál safnaðanna og ráöiö fram úr þeirn.
Meðal annars varð að ráði á fundinum, að stofna til trúmála-i
fnnda nálægt miðjum Október. Aö kvöldi sama dags flutti
prestrinn fyrirlestr í kirkjunni. B. B. J.
FræSi Litters hin minni nýlega prentuö fást til kaups lijá
hr. Sveini Oddssyni í Miiineota, Minn., fyrir 10 ct. eintakið, ef
10 eru keypt í einu; annars fyrir 15 ct.
Forkostaleg í sinni tegund er skammargrein ,,Heims-
kringlu“ frá 23. og 30. Ágúst á móti ritstjóra ,,Sam “ út af
samskotum kristindómsvina íslenzkra hér vestra til hins fyr-
irhugaða missíónarhúss í Reykjavík. Því með því ritverki er
þaö svo áþreifanlega sýnt og sannaö, að hlutverk ,,Heims-
kringlu“ er enn að bera skar?i á völl. Jafnframt eru allir,
sem þá saurgrein lesa, sterklega á þaö minntir, hve hryllilega
Ijót vantrúartegund það er. sem ráðandi er í þeirri átt þjóð-
lífs vors. Og naurnast getr kristið fólk vort fengið sterkari
hvöt en þessa til þess að lrerða á sér í baráttunni með hinu
heilaga máli trúarinnar.
Að kvöldi þriðjudagsins 18. þessa mánaðar var bandalag
Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg og ungmennafélag Tjald-
búðarsafnaðar í heiniboði hjá bandalagi safnaðarins lúterska
í Selkirk, og skemnrtu menn sér þar hið bezta — við samtal.
rœðuhald og músík, að ógleymdum ríkuleguin veitingum fyrir
líkamann. Boðsfólkið fór með sérstakri járnbrautarlest frá
Winnipeg lakri klukkustund eltir miðjan aftan og kom til baka
klukkan 3 um nóttina.
,J\Týtt Kirkjublad", hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og
kristilega menning, 18 arkir á ári, kenrr síðan á nýári síðasta
úr í Reykjavík undir ritstjórn þeirra séra Jóns Helgasonar, dó-
cents, og séra Þórhalls Bjarnarsonar, lektors. Kostar hér í álfu
75 ct. Fæst í bókaverzlan hr. Halldórs S. Bardal hér í W.peg.
,,Eimrci<Sin“, eitt fjölbreyttasta og skemmtilegasta tíma-
ritiö á íslenzku. Ritgjörðir, myndir, sögur, kvæðj. Verð 40 cts.
hvert hefti. Fæst hjá Halldóri S. Bardal í Winnipeg, Jónasi S.
Bergmann á Garðar o. fl.