Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1950, Page 10

Sameiningin - 01.11.1950, Page 10
152 Sameiningin Þess þarf varla að geta, að húsvitjanir eiga sér langa sögu. Jesús sendi lærisveinana í ýmsar áttir til þess að reisa kirkju sína. Við minnumst þess er hann sendi út „sjötíu, — tvo og tvo, í hverja þá borg og stað, sem hann ætlaði að koma til“. Vitjanir Páls postula til safnaða og einstaklinga þekkjum vér af mörgum tilvitnunum úr Heilagri Ritningu. Húsvitjanir til styrktar daglegu starfi safnaðanna, eða til útbreiðslu fagnaðarerindisins, hafa ætíð verið ein af megin stoðum kristinnar kirkju og verða það ætíð. Ný tækni og nýjar starfsaðferðir ættu að tryggja góðan ár- angur ef að við göngum ótrauðir út á meðal manna, trúaðra eða trúlausa — í Krists nafni og ríki hans til dýrðar Sem „Stewardship Secretary“ íslenzka kirkjufélagsins vil ég hvetja alla söfnuði okkar til þess að taka upp þessa aðferð: Almennar húsvitjanir (Every member Visitation) innan safnaðar en trúvakningar húsvitjanir (Evangelical Visitation) framkvæmdar af trúarkrafti og einlægni meðal þeirra, sem fráhverfir eru. __________+___________ Hugleiðing, í tilefni af afmæli siðbótarinnar Eftir séra VALDIMAR J. EYLANDS „Herrar, hvað á ég að g’jöra, til þess að ég verði hólpinn? En þeir sögðu: Trú þú á drottinn Jesúm # Post. 16:30.—31. Það var þessi gamla spurning sem fangavörðurinn lagði fyrir Pál og Sílas, sem lagðist svo þungt á Lúther, að hann hafði ekki frið í sínum beinum. Menn sem hugsa al- varlega um slík efni, eru nú oft taldir undarlegir, og jafnvel ekki með öllum mjalla. Eins og nokkur vafi sé á því að allir verði hólpnir! Eins og nokkur þurfi að gera nokkuð til þess að eignast eilíft líf! En þessi spurning, sem allur fjöldi manna vill gjarnan leiða hjá sér, og þykir jafnvel ekki umhugsunarverð, var hið æðsta spursmál lífsins fyrir Lúther. Kaþólska kirkjan á þeirri tíð hafði ákveðið svar við þessari spurningu, eins og hún líka hefir enn. Og svarið

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.