Sameiningin - 01.12.1951, Blaðsíða 3
Samejningin__________________________________
A quarterly, in support of Church and Christianity amongst Icelanders.
Published by
The Evangelical Lhtheran Synod of North America
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa.
Editor: REVEREND VALDIMAR J. EYLANDS
686 Banning St, Winnipeg, Manitoba, Canada
Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 695 Sargent Ave. Winnipeg, Man., Can.
Arinbjörn S. Bardal
Hann lézt á Almenna spítalanum í Winnipeg, á þriðju-
dagskvöldið 13. nóvember, rúmlega 85 ára gamall. Flestir
menn eru orðnir saddir lífdaga á þeim aldri, en svo var
ekki með Arinbjörn. Þrátt
fyrir árin varð hann aldrei
gamall, drógst aldrei aftur
úr, og hægði aldrei á sér
unz sjúkdómurinn, sem
leiddi hann til dauða keyrði
hann á kné. Hann var höfð-
ingi með barnshjarta, en
um leið hið mesta karl-
menni. Hann var manna
vænstur að vallarsýn og
það sópaði af honum hvar
sem hann fór. Hann var
gleðinnar og gæfunnar
barn, f 1 e s t u m fremur.
Gleðihljómarnir þögnuðu
aldrei í kringum hann.
Hann virtist ekki vita hvað
það er að vera hryggur,
þreyttur, eða e i n m a n a.
Hann bjó yfir mjög sér-
stæðum persónuleika, var
gæddur einhverju því seið-
magni sem fólk hændist að, og öllum leið vel í návist hans.
Ævi hans hófst við mjög þröngan kost í íslenzkum afdal, en
varð óvenjuleg að íjölbreytni og afrekum. I bernsku fór hann