Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1951, Side 17

Sameiningin - 01.12.1951, Side 17
Sameiningin 95 „Trúin á krossfestan trésmið" Eftir A. D. RITCHIE, prófessor Þegar ég fer að skýra frá, hverju ég trúi, verð ég að byrja á því að segja frá, hvernig mannlífið kemur mér fyrir sjónir, og ég verð að drepa á ýmis almenn trúaratriði, sem ég get alls ekki játað, vegna þess að þau eru hrossalækning við alvarlegu meini. Ég lít svo á, að mannkynið sé haldið mjög alvarlegu meini, og að þess gæti í mannlegu félagi og í viðhorfi mannsins til heimsins, sem hann lifir í. Ef litið er yfir liðna sögu mannkynsins, kemur í ljós, að mest af böli nútímans var einnig til fyrr á tímum. Nokkrar um- bætur, að mestu leyti ómerkilegar, hafa komið fram á síðustu tímum; margt annað hefir versnað. Þvaður um þró- un bætir ekki úr neinu. Slíkt tal er aðeins sjúkdómseinkenni, ef það snýst um þá kenningu, að allt lagist af sjálfu sér. Því er á allt annan veg farið um mannleg málefni; það er þörf stöðugrar baráttu, til þess að koma í veg fyrir að ástandið versni. Setjum svo, að við hefðum öðlast meiri vísindaþekk- ingu, meiri auð, betra stjórnarfyrirkomulag og réttari auð- skiptingu, myndi þá allt vera í lagi? Ég held ekki. Allt þetta er gott í sjálfu sér, en það getur líka orðið tæki til ills, en ekki góðs. Vísindaleg þekking okkar er miklu meiri en forfeðra okkar fyrir þrjú hundruð árum og við erum miklu auðugri en þeir, en þessir yfirburðir hafa verið notaðir til stórkostlegra illvirkja, en varla að neinu leyti til góðs. Engin tækniþróun getur bætt upp það böl og þá eyðilegg- ingu, sem „vísindalegur“ hernaður nútímans veldur. Jafnvel hagfellt stjórnskipulag og fjárhagslegt réttlæti þarf ekki endilega að leiða gott eitt af sér. Það er hægt að nota það í þveröfugum tilgangi. Nú kem ég að fyrsta jákvæða atriðinu í máli mínu. Allt hið illa, öll spilling í heiminum og bróðurparturinn af eymd mannkynsins á upptök sín í okkur sjálfum, stafar af spill- ingu okkar sjálfra, m. ö. o. röngum trúarbrögðum okkar. Flest fólk verður að trúa á eitthvað, hvort sem það gerir sér það ljóst eða ekki. Ef það trúir ekki á guð, dýrkar það sjálft sig eða einhverja falsguði; það er altekið fölskum markmiðum, fölskum vonum og fölskum þrám, sem að lok- um verða því sjálfu að falli, og jafnvel öðrum, og það er

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.