Sameiningin - 01.12.1951, Qupperneq 25
Sameiningin
103
og innritaðist þar strax um haustið 1941. Árið 1943 kom her-
skyldan til sögunnar og hann innritaðist í sjóherinn. Var
hann sjálfkjörinn í Upplýsingadeildina (Naval Intelligence)
sökum málakunnáttu, og fór um leið að lesa japönsku. Árið
1946 losnaði hann úr hernum, og hélt áfram námi sínu við
Harvard. Honum var veitt B. A. gráðan árið 1947, og síðan
M. A. gráðan 1948. Þá var hann sæmdur The Teschermacher
Traveling Scholarship og mátti velja um erlenda háskóla.
Hann valdi Parísarháskóla og átti þar ársdvöl, ferðaðist um
á Frakklandi og líka til ítalíu og Englands.
Eitt kennslumisseri var hann Teaching Fellow við
Harvard. En síðastliðið hálft ár hefir hann verið prófessor
í heimsspeki við Princeton-háskólann. Þegar hann var spurð-
ur hvort hann ráðgerði að halda því starfi áfram, svaraði
hann játandi, en sagði alveg óvíst hvar helzt. Hvort hann
myndi ferðast til íslands? Jú, að sjálfsögðu, og við fyrsta
tækifæri.
Eftir því sem ég framast veit, er Dr. Frederick Ólafson
fyrsti vestur-íslenzkur námsmaður sem hlotið hefir nokkurn
þann námsstyrk, er að ofan er skýrt frá, hvað þá alla þrjá
í röð. Við samgleðjumst honum og hans nánustu, og óskum
honum allrar hamingju og blessunar í framtíðinni um leið
og við þökkum honum dugnaðinn alt frá byrjun.
Seattle, Wash., 31. júlí 1951
Jakobína Johnson
Kvöldvaka 1/2 1951
----------☆-----------
Kona nokkur í Winnipeg hefir gefið Háskóla Manitoba-
fylkis eintak af íslenzku biblíunni, prentuðu á Hólum árið
1644 (Þorláksbiblía). Eru slíkar bækur mjög fágætar og í
háu verði. Framan við bókina er blað með skrautletaðri,
yfirlýsing á þessa leið: „Gjöf til kennarastólsins í íslenzku
og íslenzkum bókmenntum við Háskóla Manitoba-fylkis,
Winnipeg, Canada. í minningu um foreldra mína, Helgu
Thorsteinsdóttur Ingjaldssonar, frá Skildinganesi á Sel-
tjarnarnesi, og Magnús Jónsson Magnússonar, hreppstjóra,
frá Hofsstöðum í Álftahreppi, er fluttust til Canada árið
1888, frá elskandi dóttur, Mrs. George Wm. Harpell, 521
Dominion St., Winnipeg. — Aðrir meðlimir fjölskyldunnar
á lífi er þessi gjöf er afhent eru: Jón Magnússon Borgfjörð
og Guðmundur Magnússon Borgfjörð, báðir í Árborg, Man.,
og Mrs. Sigríður Landy, Cypress River, Man.“