Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1953, Side 13

Sameiningin - 01.09.1953, Side 13
Sameiningin 59 atriði, að Jesús dvelur tvo daga í Pereu eftir að honum berst orðsendingin um banalegu Lazarusar. Og síðar er slept orðum Mörtu: „Hann hefir legið í gröfinni fjóra daga.“ Sambandið er auðsætt. Alla jafna skýrir hann þó frá kjarna hverrar sögu, sjálfu kraftaverkinu, hispurslaust eftir orðum heimildanna. Síðasti kaflinn í þessari bók er um „staðreynd upp- risunnar.“ Rökin, sem höfundur leiðir fram til sönnunar þeirri staðreynd, lýsa öruggri sannfæringu. Þeim er öllum haldið til skila með frábærri dómgreind og glöggskygni. Ég hefi aldrei séð það verk betur af hendi leyst. Niðurlags- orðin eru: „Kristur er upprisinn. „Kristur er sannarlega upprisinn.“ Við þeim orðum segi ég „amen“ af öllu hjarta. Og: „Þökk fyrir lesturinn.“ —G. G. „Ekki eins og aðrir menn" Mönnum er stundum lýst á ýmsan hátt: „Margan á Guð sér góðan“ og „Oft er misjafn sauður í mörgu fé“. Mun hvorutveggja réttmæli. Þá er og gamalt mál: „Reynslan sýnir, að mennirnir eru ekki eins góðir og þeir ættu að vera“. Ýmsir brestir finnast í fari manna, sem háir þeim andlega. Frelsarinn lýsir skapgerð tveggja manna, sem gengu til viðtals við Guð. Annar harmar yfir synd sinni og veik- leika; hinn fer að lýsa guðrækni sinni. Sá fyrri er talinn réttlátari, en hvorugur talinn algjör. Sjálfsþóttinn og sjálfbyrgingsskapurinn dylzt oft í jarð- veg hjartans. Þegar lætur vel í ári, og margt gengur að óskum, er hætt við að mönnunum fari að finnast mikið til sjálfs sín: „Ég er ekki eins og aðrir menn“. Orðum Páls postula er stundum gleymt: „Hvað hefir þú, sem þú ekki hefir þegið? En hafir þú nú þegið. Hví stærir þú þig þá, eins og þú hafir ekki þegið?“ (1. Kor.br. 4:7.). Dæmi eru fyrir því, að menn hafi komizt úr fátækt og armæðu. Við það urðu þeir svo hrokafullir, að þeim fanst

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.