Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 16
62 Sameiningin Heima í söfnuðunum fékk málið undraverðan byr. Sumir, að minsta kosti, sáu sanngirnina í því, að þegar söfnuðir vestur á strönd væru að leitast við að senda erindreka á hverju ári langa leið austur á kirkjuþing, að við hér eystra færum einu sinni á 25 eða 50 árum vestur. í nokkrum hópi manna, benti ég á, að ferðir héðan að austan vestur á Kyrrahafsströnd væru orðnar svo almennar, að þær væru nú ekki eins stórkostlegar eins og þær sýndust hér áður, og það gæti jafnvel komið fyrir, að sumir gætu sameinað kirkjuþingsferð við skemtiferð. Að þessu var hlegið, en þetta kom þó á daginn; það voru óvanalega mörg hjón erindrekar á þessu þingi. Mr. N. O. Bardal á miklar þakkir skilið fyrir það verk, sem hann vann að þessum undirbúningi. Hann kom á stað hópferð erindreka og gjörði nauðsynlegan samning við járn- brautarfélagið um nokkuð niðursett fargjald. Þetta hepnað- ist ágætlega. í þessu ferðalagi var skemtileg skipsferð frá Vancouver til Seattle og svo til baka. Kirkjuþingið var haldið, eins og til stóð, í kirkju (Calvary) Hallgrímssafnaðar. — Það var persónulega unaðs- legt fyrir mig, því ég var fyrsti lúterski presturinn, sem þjónaði í þeirri kirkju. Hún var upphaflega Methodista kirkja. Árin 1925—’27 þjónaði ég íslenzka söfnuðinum í Seattle. Fyrra árið höfðum við guðsþjónustur í norsku, lútersku kirkjunni. Um sumarið fór ég austur á kirkju- þing og dvaldi þar eitthvað lítilsháttar lengur; á þeim tíma tóku safnaðarmenn mínir rögg á sig og keyptu þessa kirkju af Methodistum, sem þá voru eitt'hvað að breyta til með kirkjur sínar. Þar hóf ég starfið, þegar ég kom aftur vestur. Starfið blómgaðist. Um vorið höfðum við sunnudagaskóla með 12 kennurum. Um sumarið fór ég aftur austur, en séra Kolbeinn Sæmundsson varð prestur safnaðarins. Kirkjan, sem tók á móti kirkjuþingsgestunum, hafði tekið stórkostlegum breytingum til batnaðar frá minni starfstíð. Og þarna var gott kirkjuþing haldið, dagana 24.,— 27. júní. Að minsta kosti einu leyti var þarna haldið óvana- lega gott kirkjuþing. Þarna var minna óþarfa þref og þjark en á flestum okkar kirkjuþingum, sem ég hefi sótt. Að skoðanamunur komi fram á mannfundum er nokkuð, sem maður býst við, en til þess það fari vel verður að vera sannleiksást og sanngirni á báðar hliðar. Jæja, það verður

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.