Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 18
64
Sameiningin
heilu tíðina hafa einnig verið til smærri og stærri svæði,
sem ekki hafa fengið meir en mjög litla prestsþjónustu.
Stundum höfum vér verið að mæna til íslands, og stundum
hefir vonin orðið að uppfylling. í raun og veru hefir nýtt
Ijós verið kveikt með oss í hvert skifti, sem vér höfum
fengið nýjan, góðan prest. í þessu efni virðist mér síðasta
kirkjuþing hafi flutt okkur inn í nýjan heim ljóss og
fegurðar. Fyrst var á kirkjuþinginu vígður ungur guð-
fræðingur, með nokkru af íslenzku blóði í æðum sínum,
Mr. Virgil Anderson, og hefir hann tekið við trúboðsstarfi í
kirkjufélaginu. Og svo komu fregnir á þingið um tvo guð-
fræðinga á íslandi, sem hafa tjáð sig fúsa til að starfa í
kirkjufélagi voru. Ekki ætti að vera erfitt að finna þeim
verksvið hér. Guð á himnum gefi okkur náð og vit til þess
að nota rétt þessi og önnur góð tækifæri, ríki hans til
eflingar.
Mér blæðir í hjarta, er ég hugsa til hinnar stóru, fögru,
farsælu Vatnabygðar í Saskatchewan, að hún skuli ekki
vera fast, íslenzkt, lúterskt prestakall. Séra Guttormur
ferðaðist þangað í fyrra, dvaldi þar mánaðartíma og flutti
boðskap Guðs orðs með þeim krafti, sem honum er lagið.
Og andi Guðs blessaði boðskapinn og hina unaðslegu kristi-
legu vinsemd, sem hann er svo auðugur af; en tíminn til
stórra framkvæmda var auðvitað of stuttur. Drottinn á
himnum sendi þessu málefni leiðsögn og blessun sína.
Allir kristnir menn þrá það, af öllu hjarta, að mann-
kynið í heild vildi snúa sér til Guðs og þiggja leiðsögn hans
og blessun, en vanalega verður bænarefni vort einstakir
menn eða sérstakir hópar fólks. í þetta sinn leitar hugurinn
ásamt hjarta til íslenzka lúterska safnaðarins í Vancouver.
Söfnuðurinn hefir nú hinn ágætasta prest, séra Eirík Bryn-
jólfsson, sem áður var prestur að Útskálum á íslandi. Eftir
því sem ástandið kom mér þar í Vancouver fyrir sjónir,
eru safnaðarkraftarnir prýðilega sameinaðir og sívaxandi.
Hjá söfnuðinum er brennandi áhugi fyrir því að reisa
Drotni kirkju. Almáttugur Guð á himnum gefi því máli
sigursæla framkvæmd. Heilagur andi fylli hjörtu og anda
fólksins með nauðsynlegum vísdómi og krafti til að efla
Guðs ríki alt sem unt er. Guð blessi þig, vinur minn, séra
Eiríkur, í þessu mikilvæga og nauðsynlega starfi.
í þessu, sem ég hefi verið að leitast við að skrifa, hafa