Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 15
Sameiningin 61 sér um margt, og að hann svaf í jötu þangað til hann varð svo efnum búinn, að hann gat komið sér upp skýli yfir höfuðið. Það er sagt um hinn öfundssjúka, að hann éti sitt eigið hjarta, og að ormur hans deyi ekki. Meðal þess sama flokks finnast þeir, sem telja sig hafna yfir aðra menn, svo að þeir sjá ofsjónum yfir því, þegar lítt efnaðir og lítt kunnir menn komast til velfarn- aðar. Það er þó rétt, sem skáldið Longfellow segir, að þau metorð voru ekki unnin í einu stökki. Mig bar eitt sinn að skógarrjóðri; tjörn allmikil var í rjóðrinu. Þar ólu aldur sinn margar tegundir fugla af afar mismunandi stærð og útliti. Það vakti aðdáun mína að sjá, hvernig fuglarnir umgengust hvorn annan, þrátt fyrir mis- munandi lit og fegurð. Mér kom til hugar: „Hvers vegna getum við mennirnir ekki gert það sama?“ — s. s. c. Kirkjuþing í Seattle Á kirkjuþinginu, sem haldið var í fyrra í St. Páls kirkj- unni í Minneota í Minnesota-ríki, bar frú E. H. Sigmar, kona íslenzka prestsins í Seattle, fram fyrir hönd Calvary- sanfaðar í Seattle boð um það að halda næsta kirkjuþing í þeim söfnuði. Kirkjuþing höfðu áður verið haldin í tveimur fylkjum Canada: Manitoba og Saskatchewan, og í tveimur ríkjum Bandaríkjanna: Norður Dakota og Minnesota. Þessi svæði eru öll um miðbik Norður-Ameríku. En að láta sér detta það í hug að reyna að halda kirkjuþing alla leið vestur á Kyrrahafsströnd, það hefði, nokkurn veginn fram að þessum tíma, verið í kirkjufélaginu talið óðs manns æði. Kirkjufélag vort hefir ávalt verið talið fátækt. „Fátæktin er mín fylgikona.“ Stundum hefir mér fundist, að Kirkju- félagið hafi of sterka hugmynd um fátækt sína. En einhver undraljómi var yfir þessari prestskonu frá Seattle, sem greip hug kirkjuþingsmanna í Minneota. Fáeinir menn töluðu, en á stuttum tíma var boðið um kirkjuþingshald í Calvary kirkjunni í Seattle, sem séra Eric H. Sigmar þjónar, samþykt í einu hljóði.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.