Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1954, Page 16

Sameiningin - 01.09.1954, Page 16
70 Sameiningin Táknmál kirkjunnar Erindi, flutt aö Betel, Gimli, 15. ágfúsí 1954 (í tilefni af vígslu kirkjunnar á Gimli) „Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, drottinn her- sveitanna. Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða drottins“. 84. Davíðs sálmur. Það hefir ávalt verið kenning og trú kristinna manna, að Drottinn allsherjar fái ekki dvalið í þeim musterum, sem með höndum eru gjörð, heldur sé hann allstaðar nálægur, og að jafnvel himinn og jörð fái ekki rúmað eilífa hátign hans. En þrátt fyrir þá trú, hafa menn frá öndverðu reist Drottni musteri, og byggt kirkjur í hans nafni, og honum til dýrðar. Þetta hafa menn gert vegna sjálfra sín, fyrst og fremst vegna þess að samfélagið til tilbeiðslu og guðsdýrkunnar er óhugsandi án tilhlýðilegra húsakynna. Þannig eru þá kirkjurnar jafnan að útliti og allri gerð eins konar túlkun á þeim trúarþroska, sem menn búa yfir á hverjum stað. Hvar sem vér sjáum fallega kirkju megum vér ganga að því vísu, að þar er fólkið á andlegri þroskaleið, að það þráir forgarða Drottins og finnur þrá sinni framrás í föstu formi og fögrum stíl. Þessi sólbjarti sumardagur, 15. ágúst, sem er og 9. sunnu- dagur eftir trínitatis, mun lengi verða minnisstæður í sögu þessarar sveitar. Þessi dagur mun í minni manna settur í samband við vonir, sem hafa rætzt, og drauma, sem hafa komið fram. í dag fara hér fram sérstakar helgiathafnir, það sem vér nefnum kirkjuvígsla, og munu margir taka undir með sálmaskáldinu, er þeir ganga inn í hið nýja Guðs- hús þessa bæjar: Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, drottinn hersveitanna“. Þessi kirkja er að sjálfsögðu reist Guði til dýrðar, en um leið í þakklátri minningu um frum- herjana, sem fyrst bar upp að þessum ströndum, sem ruddu hér skóga, ræktuðu forarfen, og reistu hinar fyrstu kirkjur og söfnuði hér í sveit. Þessi nýja kirkja er vissulega á allan hátt veglegri en hinar fyrri, enda er nú byggðarbragur hér með allt öðrum hætti en áður var. Byggðin nýtur nú meiri hagsældar en nokkru sinni fyrr; hún er fjölmennari en

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.