Sameiningin - 01.05.1948, Blaðsíða 3
Hér með tilkynnist
öllum hlutaðeigend-
um að kirkjuþing
Hins evangelizka lúterska kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi verður haldið, ef Guð lofar, í Gimli prestakalli, Gimli,
Manitoba, frá 18. til 22. júní 1948.
Þingið hefst með guðsþjónustu og altarisgöngu í kirkju
Gimli-safnaðar, föstudaginn, 18. júní 1948, kl. 8 e. h. — Day-
light Saving Time. —
Sæti á þingi eiga embættismenn kirkjufélagsins, prestar
þess, og fulltrúar frá hinum ýmsu söfnuðum kirkjufélagsins,
einn fulltrúi fyrir hverja hundrað fermda meðlimi eða brot
af hundraði. Þó má enginn söfnuður hafa fleiri en fjóra full-
trúa. Bandalagi lúterskra kvenna eru heimilaðir tveir full-
trúar, og Ungmennasambandi kirkjufélagsins eru heimil-
aðir tveir fulltrúar.
Samkvæmt lögum kirkjufélagsins, ber öllum prestum
þess að sækja þing, og öllum söfnuðum þess ber að senda
fulltrúa. Kjörbréfum og afsökunum skal framvísað á fyrsta
þingdegi. —
Dagsett í Árborg, Man., 10. maí 1948.
Séra EGILL H. FÁFNIS, forseti,
Séra B. A. BJARNASON, skrifari.
Kirkjuþingsboð
•
Sameiningin fagnar af alhug þeim heiðri sem fallið
hefir vini vorum, séra Rúnólfi Marteinssyni, í hlut,
að hann verður í lok þessa mánaðar sæmdur doctors
nafnbót af Gustavus Adolphus College. Verðskulduð
er sú viðurkenning, eins og langt og merkilegt ævi—
starf hans bezt ber vitni um. — Vér samfögnum allir!
S. Ólafsson.