Sameiningin - 01.05.1948, Blaðsíða 17
Sameininoin
79
hvað eftir annað. Við lærum ekki þetta guðinnblásna lag;
en það mun halda áfram að óma í hjartanu. Söngurinn stíg-
ur upp í opinn himininn frá þessum krjúpandi söfnuði. —
Dauðinn er horfinn. Allt er ljós og líf. Þetta er dýrlegasta
guðsþjónusta sem við höfum nokkru sinni lifað. Mér finnst
hún búa yfir upprisufögnuði frumkristninnar. Loks rís
söfnuðurinn á fætur og heldur til opinberunar-kapellunnar,
eins og til samfundar við drottinn sinn upprisinn og syngur
honum lof. — Framhald.
____________*____________
Eftir séra S. S.
Chrisíophersson
Það virðist full á-
stæða til þess að
minnast þessa á-
gætismanns. Nú eru á þessu ári liðin fjögur hundruð ár frá
fráíalli hans. —
Hann er talinn að vera fæddur um 1508 eða 1509. Tiltölu-
,lega ungur tók hann við biskupstörfum í Skálholti og lézt
eftir að hafa gegnt því starfi í átta ár.
Mörg voru verkefnin og vandasöm ,sem biðu hins unga
biskups; var honum lagt fyrir að innleiða lúterska kenn-
ingu; tveir kaþólskir og ráðríkir biskupar sátu á biskupstól-
um, Jón Árason á Hólum og Ögmundur Pálsson í Skál-
holti, enda voru þeir mjög fráhverfir hinni nýju evangelisku
kirkjuskipun, sem Danakonungur vildi innleiða í ríki sínu;
átti Gissur biskup að róa að því öllum árum, að kirkjuskip-
unin yrði viðtekin á íslandi. Við það bættist ennfremur að
öll reikningsskil Skálholts-biskupstóls voru mjög í óreiðu.
Gerði Gissur kröfur til eigna stólsins, sem Ögmundur biskup
hafði ánafnað sér. Með kröfum þessum olli Gissur sér óvin-
skapar Ögmundar, sem leiddi til fulls fjandskapar. Skirðist
Ögmundur ekki við að gera hin nýja sið tortryggilegan, og
skapa óvináttu gegn Gissuri, og gera honum lítt mögulegt
fyrir með að fá innleidda kirkjuskipunina.
Þar kom að, að konungur sá sér ekki fært að láta þar við
lenda, og tók til sinna ráða með því að flytja Ögmund biskup
utan lands. —
Mjög hefir Gissuri verið legið á hálsi út af þeim viðskift-
Gissur biskup
Einarson