Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1948, Page 13

Sameiningin - 01.05.1948, Page 13
Sambininoin 75 staðið og horft á, hvernig búið var um líkama Jesú og' greftr- un hans. — Frá þessum stað höldum við milli tveggja voldugra og hárra, ferstrendra súlna, vestur í hvolf-kirkjuna hring- bygðu yfir gröf Krists. Hvelfingin mun enn lík í laginu, hvelfingunni forðum í kirkju Konstantínusar, en súlurnar eru nú sex fleiri. Upp undir háhvelfinguna mun vera nær þrjátíu metrum, en þvermál hennar virðist um tveir þriðju hlutar af þeirri hæð. Sú hvelfingin er miklu meiri en hin. Hún er opin efst, en yfir opinu er gullin glerhjálmur og gullin kross. Nú er verið að gera við hvelfinguna, múra hana og slétta. En þó er hátignin yfir þessu guðshúsi svo mikil, að við finnum þegar að hér er hið allra helgasta: Grafar- kirkja og Upprisukirkja í senn. Söngurinn að ofan verður einnig til þess að auka á helgi stundarinnar. Við -gefum hon- um meira og meira gaum, og okkur finnst við skilja hann betur og betur. Hann sameinast kirkjunni allri með einhverj- um undursamlegum hætti, fer um hana eins og straumur af lífi, eins og þytur vorsins, þegar það lætur skóginn springa út. Á gólfinu undir hvelfingunni miðri stendur mjög lítil marmara-kapella, kapella grafarinnar helgu. Þegar gröfin fannst, á dögum Konstantínusar, var hún enn klettagröf. Lét Konstantínus höggva mesta klettinn ofan af henni, en þó ekki allan, því að þá hefði hún ekki lengur verið kletta- gröf. Það lítið sem eftir varð af klettinum umhverfis hana, var löngu seinna — árið 1010 — brotið niður af fjandmönn- um kristninnar. Þá var múruð kapella yfir staðnum, og hver af annari, eftir því sem aldir liðu. Sú, sem við höfum fyrir framan okkur, er frá öndverðri öldinni sem leið, öll lögð marmara. Þakið er þannig lagað, að hún minnir á tjaldbúð, og stendur upp úr því lágur smáturn, opinn. For- dyri er gegn austri, en á Krists dögum voru venjulega for- dyri að gröfum, og var steinninn fyrir grafarmunnanum innst í þeim. Þurfti að lúta til þess að geta skyggnzt inn í gröfina sjálfa. Sitt hvoru megin á kapellunni eru tvö kringlótt op, og ríkir sú trú, að inn um þau komi eldur af himni á aðfaranótt páska og kveiki á blysum höfuðbiskup- anna. Steinarnir á kapellunni eru margir og sléttir, en aðrir skornir, og birta leikur um hana frá lömpum og kistum. Þó er íburðurinn ekki svo mikill að hann skyggi á helgi þessa staðar. Fáeinir háir ljósastjakar úr silfri standa eins og vörð í tveimur röðum framundan dyrunum. Við göngum á milli

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.