Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1948, Page 14

Sameiningin - 01.05.1948, Page 14
76 Sameiningin þeirra og stígum upp eitt þrep inn í fordyrið. Þá verðu-r fyrst fyrir okkur engilskapellan, og við sjáum í henni marmaralagðan stein, sem minnir á skírnarfont. Nafnið á kapellunni og steinninn minna þegar á frásögnina í Matt- heusar-guðspjalli — 28.,2—3: — “Og sjá, mikill lándskjálfti varð, því að engill drottins steig niður af himni og kom og velti steininum frá og settist ofan á hann”. Þetta á að vera sá steinn, eða hluti af honum, og er hann máður af kossum pílagrímanna. Inni eru rósrauðar marmarasúlur, og halda þær þakinu uppi.. Innst eru mjög lágar dyr. Þær eru að gröfinni, og verður að beygja sig djúpt til að komast inn um þær. Það vekur í senn lotningu og minnir á það, hvernig í guðspjöllunum stendur, að lærisveinar Jesú hafi gægst inn í gröfina. Hún er fjórtánda, síðasta stöð Via Dolorosa. Mikla birtu leggur á móti okkur frá fjölda af lömpum, sem loga dag og nótt, og Grikkir, Rómverjar, Armeningar og Koptar eiga. Við göngum inn í gröfina, eða grafhýsið. Hún er lítil, bæði styttri og þrengri en Engils-kapellan, um 2 metrar á lengd en tæpir 2 á breidd og geta ekki verið þar fleiri en 3—4 menn í einu. Hún er öll lögð marmara. Hægra megin er sýndur “staðurinn þar sem þeir lögðu hann”. Þar er stall- ur að endilöngu klappaður í steininn og bogahvelfing yfir honum. Hann er tæplega meter á hæð og mátulega breiður fyrir lík. Svo voru stallagrafir á Gyðingalandi á Krists dög- um. Hvít marmarahella liggur á stallinum, brostin í sundur í miðju, en yfir er meitluð í marmarann mynd af upprisu Krists. Við stallinn hafa verið sungnar tíðir daglega, og er hann þá altarið. Við hann falla pílagrímarnir fram og kyssa steininn. Inni eru blóm, og rennur ilmur þeirra saman við reykelsisanganina. Hve lengi við vorum hér, veit ég ekki. Þau augnablik eru til, að eilífðin nemur tímann burt. kemur sjálf í staðinn, en á mannlegan mælikvarða hefir það senni- lega verið stutt stund. Eg man það að ég óskaði þess, að hér hefðu þeir mátt krjúpa, Hallgrímur Pétursson, Matthías Jochumsson, Valdimar Briem, og svo hefðu þeir getað sungið eitthvað af reynslu sinni inn í þjóðarsál íslendinga. Eg kann ekki að lýsa nema með þögninni. Hann er nálægur á þessum stað “sigrarinn dauðans sanni”, ekki aðeins sigrari dauða líkamans, heldur sigrari dauðans í mannssálunum, sem hver maður verður að lokum að gefast upp fyrir og hætta að spyrna á móti broddunum, sigurhetjan, sem hvert kné hlýt- ur um síðir að beygja sig fyrir — frelsarinn. Fyrir innan

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.