Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1948, Side 15

Sameiningin - 01.05.1948, Side 15
tíAMKlNINGIN 77 okkur stendur ungur maður í munkaklæðum, manna fríð- astur, sem ég hefi séð, með heilags manns yfirbragði, aúgun björt og skær og ljóma af tilbeiðslu og ástúð. Það er ems og geisli af dýrð Krists hafi fallið á hann og ummyndað hann. Hann brosir til okkar og vætir okkur um ennið með vígðu vatni, svo færir hann okkur kerti, til þess að við getum kveikt á þeim og látið loga við stallann, eitt fyrir okkur sjálfa, annað fyrir ástvini okkar, og síðast tekur hann rauðar nelkur, strýkur þeim við marmarahelluna og réttir sína hvorum og fylgir þeim reykelsisilmurinn og þessi sérkennilega angan, sem er í Grafarkirkjunni. Við tölumst ekkert við, en hann skilur okkur og við hann. Við tökum nú eftir því, að málmgrindur eru vestast í gröfinni og gegn- um þær getum við horft inn í lítið bænahús, sem Koptar eiga, áfast við hana. Þeir eiga einnig 4 af gulllömpunum 43, sem hanga í skrautfestum niður úr loftinu, yfir gröfinni. Nú veitum við jafnframt athygli söngnum að ofan, við vitum að hann kemur frá Golgata. Hann er að breytast. Hann er í sama anda og þessi vers í Passíusálmunum: “Kem ég nú þínum krossi að, kannastu, Jesú minn við það; syndanna þungi þjakar mér, þreyttur ég nú að mestu er. Alnakinn þig á einu tré, út þínar hendur breiðandi, sárin og blóðið signað þitt sér nú og skoðar hjartað mitt. Þar við huggar mín sála sig, svoddan alt leiðstu fyrir mig; þíns hjartadreyra heilög lind hreinsar mig vel af allri synd. Krossins burt numinn kvölum frá Kongur ríkir þú himnum á; herra, þá hér mig hrellir þín, hugsaðu’ í þinni dýrð til mín. Þessi voldugu umskifti, sem nú eru að hefjast í söngnum, eins og á milli þessara síðustu versa, eru undiralda hugs-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.