Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1948, Page 16

Sameiningin - 01.05.1948, Page 16
78 Sambininqin ananna, sem vakna í gröf Krists. Hann er hér nálægur, sem lét lrf sitt fyrir okkur. Og þó, — “þér leitið að Jesú frá Nazaret, hinum krossfesta; hann er upprisinn, hann er ekki hér; sjá, þarna er staðurinn þar sem þeir lögðu hann”. Við gengum úr Grafarkirkjunni inn í kapelluna. Nú er hún orð- m Upprisukirkja þegar við komum aftur út. Við höldum norður milli súlnanna og komum eins og í veglegt og hátt fordyri að stórri kapellu, sem Fransiskanar eiga, Opinberunar-kapellunni. í fordyrinu eru eingöngu sungnar latneskar messur. Þar verða fyrir okkur á gólfinu tveir marmarahringir. Syðri hringurinn á að marka staðinn í garði Jósefs i'rá Arimaþeu, þar sem María Magdalena stóð á páskadagsmorguninn, en sá nyrðri, staðinn þar sem Jesús stóð upprisinn og spurði hana: “Kona, hví grætur þú?” — Kapellan stendur fáeinum þrepum hærra á þeim stað, sem katólskir menn telja að Jesús hafi birzt móður sinni. Þar er orgel, eina hljóðfærið í kirkjunni. Organleikarinn situr við það. Nú slær hann fyrstu tónana. “Lítið við”, hvíslar förunautur okkar. Við sjáum nú mikla skrúðfylkingu koma niður að austan úr kirkjunni, og vitum að það hefir verið hún sem söng á Golgata. Þetta eru dýrleg hátíðahöld. í sömu andrá rifjast upp fyrir mér, að nú er einmitt Pétursmessa og Páís, sem liðu báðir píslarvættisdauða í Rómaborg 29. júní árið 67. Fylkingin líður áfram í áttina til grafarinnar. Prestarnir í fullum skrúða í fararbroddi, aldraðir menn. Þá koma munkar í síðum kuflum, Fransiskanar, og þvkist Magnús* þekkja dr. Saller í flokknum, svo nunnur, svart- klæddar, með stóra hvíta motra og loks námsstúikur og faldar einnig hvítu. Þau halda á logandi kerti í hendi hvert um sig. Þau syngja öll óumræðilega hrífandi tilbeiðslusálm. Annan eins söng höfðum við aldrei heyrt og munum aldrei heyra hér í lífi. Við færum okkur nær, komum aftur að súl- um Upprisukirkjunnar. Presturinn, sem fremstur er, gengur inn í grafarkapelluna, en hin öll falla á kné, flest létt eins og ósjálfrátt. Einum presti, fjörgömlum og ellimóðum og lotnum, veitist það þó mjög erfitt, en ég sé það á svip hans, * að “á meðan hjartað nokkuð kann sig bæra” muni hann vilja krjúpa. Reykelsiskerum er veifað. Tíðasöngur og sálmasöng- ur skiptast á. “Kristur, miskunna þú oss”, er endurtekið * Prófessor dr. Magnús Jónsson, annar höfundur bókar- innar Jórsalaför. — Ritstjóri.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.