Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1930, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.03.1930, Blaðsíða 20
82 Á föstudaginn höfðum við síðustu kenslustundina og kvöddum okkar góðu vini á vatnsbakkanum. Svo flutti Gústi Davidson okkur það kveld 28 mílur til Ashern, þar sem við vorum nóttina, og komum svo heim til Winnipeg um morguninn. Þessar þrjár löngu ferðir, frá Eriksdale til Vogar, norður að Oakview og svo til Aáhern, vor- um við fluttar af góðum hug og algerlega endurgjaldslaust. f Oak View bygðinni hafði verið sunnudagaskóli sem næst eitt ár, og stóð Mrs. Sigríður Johnson fyrir honum. Báðum við hana og aðrar konur að halda áfram, en ekki hefir orðið af því. í>ó hafa ljósgeislar og blöð verið send með pósti til yngri barnanna. Um jólin sendum við með hjálp Sameinaða Kvenfélagsins smá sögubækur til yngri barnanna og Nýja testamenti til þeirra eldri, og líka spjöld (bnotto cards) til allra. Hafa sum af börnunum skrifað mjög innileg þakklætisbréf. — Þegar maður fær svo mikið þakk- læti fyrir svo litið tilvik langar mann nú en meir til að gera það, sem hægt væri, til þess að þessir unglingar gætu fengið betri skiln- ing á því, hvað kristinn trú getur gagnað' í lífi Ihvers eins manns. Um nauðsyn þessa starfs finst okkur engin efi. 1 flestum til- fellurn höfðu börnin notið lítillar eða engrar uppfræðslu i kristilegum efnum — þó að það væru fáein, sem voru heldur vel að sér. Eldri börnin eru komin á fermingaraldur, en af þvi messað er svo sjaldan; ef til vill fjórum sinnum á ári, þá er erfitt að Ibúa börn undir ferm- ingu. Finst manni þurfa einhver áhrif til að hvetja þessa unglinga til að hugsa um trúarleg efni og trúarlíf. Börnin sjálf tóku vel á móti öllu, sem við höfðum að segja þeim, og voru fljót að læra og notuðu vel þetta tækifæri. Virtist fólk yfirleitt líka vera hlynt verkinu. Það eina sem við heyrðum fundið að var það, að tíminn væri of stuttur, að það þýddi ekki að vera að þessu svona fáa daga. Reyndum við að sýna fram á að tíu dagar með tveimur og hálfri klukkutíma kenslu væru 25 kenslustundir, eða hér um bil sex mán- aða sunnudagaskóli, eins og hann er vanalega haldinn, og þar sem þetta er líka alveg ný reynsla fyrir börnin verður það þeim mun minnistæðara. Og þegar Iþau vita að' tíminn er stuttur, má heldur búast við því, að hann sé notaður sem bezt. Eg hef lýst ferðalaginu til þess að þið gætuð skilið þær ástæður allar sem fyrir hendi eru. Um trúarleg áhrif þessa starfs er erfiðara að ræða. Við gerðum það1 sem við gátum og vonum að þessi tilraun hafi einhver áframhaldandi áhrif. iHivað sem þeim áhrifum liður, er enginn vafi á því að þau margfölduðust ef hægt væri að halda áfram því sem nú hefir verið komið á stað. Með þessari byrjun er mikið búið, því að við lærðum margt af ferðinni, og sjáum mörg tæki- færi til þess að næsta tilraun verði fullkomnari. Guð blessi starfið og gefi því æ vaxandi árangur.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.