Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1930, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.03.1930, Blaðsíða 30
92 Hjarta hinnar fögrustu og indælustu ungmeyjar landsins hafði brostið af harmi. Svo hafSi hjartablóSi hennar verið út'helt. fyrsta sinn fór hrollur um hann eftir sigurvinningu, er liann hugsaði til þess hve dýru verði hún hefði veriS heypt. ÞaS jók tilfinning fyrir hinum mörgu, sem hann haföi valdiö harmi. Hann mintist ekkjunnar, er vanmegnaSist af sorg í kastala sínum, angistar brúSurinnar er sá stríSsöxina ríSa í höfuS manni hennar, hinnar fögru iheitmeyjar er áSur var alsæl en nú vitskert af sorg — og síSast hins hvíta og blæSandi líkama Agnesar St. Bertrand. Er þessar mvndir brugSu fyrir í huga riddarans, greikkaSi faann sporiS og greip höndunum í angist um höfuSiS, er stóS í svitabaöi. Samvizkubit nagaSi sálu ihans. "Til hvers hefir þetta veriS ?” mælti hann fyrir munni sér. “Til hvers hefir þetta veriS ?” Er ég hugrakkari, betri, eSa sælli fyrir alt þetta blóöbaö ? Sannar- lega er alt hégómi.” Alla nóttina gekk hann um gólf, en um dag- renning reiS hann burt aleinn. Sólin kom upp og settist, árstíöirnar komu og fóru og árin liSu, en riddarinn snéri ekki aftur. Einsetumaðurinn Fjarri starfi og stríSi lífsins bjó guShræddur einbúi, sem meS bœnum, föstu og syndabótum ýmsum reyndi aö eignast friö fyrir órólega samvizku. FæSa faans var ávextir og drykkur hans hiS tæra vatn, sem rann hjá býli hans í óbygöinni. Endur og sinnum bar það við aS viltur ferSamaður eða veiSi- maSur hitti þennan einmana mann í útlegS hans. ViS þá talaöi hann af eldmóSi um hégóma lífsins og vizku þeirra, sem afneita hégóm- anum og gefi sig Guöi. Fanst þeim aö einsetumaöurinn væri bæði viltur og sæll. En þeir fóru vilt. Hvorki bæn eöa syndaJbætur gátu linað sársauka tómleikans í hjarta hans. Ef hann var seell, þá var það sæla sem enginn þurfti að öfunda hann af. Ef hann var vitur, þá var sú vizka skyldari eigingirni þessa lífs en helgri góSsemi eilífö- arinnar. Dagarnir komu og fóru. ÁrstíSirnar breyttust. Árin liSu. Altaf héldu áfram bænir einsetumannsins. Á morgnana baS hann og er sólin gekk undir kraup hann enn í bæn. Hann var oröinn beygður, þó ekki af elli. Hár ihans var hvítt, þó ekki af mjöll margra vetra. En alt kom fyrir ekkert. EinsetumaSurinn gat ekki fundiö frið hjarta sínu. Eina nótt dreymdi hann í klefa sínum að engill miskunseminnar kom til hans og sagSi: “ÞaS er fánýtt, alt fánýtt. Hefir þú ekki þegiS kraft til aö vera meSbræSrum þinum til heilla? Hvortki bæn, umhugsun eSa syndabætur nægja til aö gera manninn hreinan og þvo burt misgjörSir hans.” “Vel gert þú trúi og dyggi þjónn.” Þessi guSlegu orS hefir þú ekki numið. Þú kallar sjálfan iþig Drottins þjón, en hvar er starf þitt? Eg kem ekki auga á þaS. Hvar eru þeir hungruöu, sem

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.