Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 6
36 Skriftir í katólsku kirkjunni Maður aÖ nafni E. Boyd Barrett, sera fyrrum var prestur í katólsku kirkjunni um tuttugu ára skeiÖ, og meÖlimur í reglu Jesúíta, skrifaÖi fyrir einu eða tveimur árum bók. sem hann nefnir : “Á meÖan Pétur sefur.” Bókin er skrifuÖ, að því er höfundur segir, i þeim tilgangi að benda hinni voldugu páfakirkju á ýmislegt, sem betur mætti fara í starfi hennar og venjum. Einn kaflinn í þeirri bók er um skriftir eða syndajátningar katólskra manna. Þær eru háSar reglum og lagaboðum, eins og flestir vita. Katólskum mönnum er boÖið að játa syndir sínar að minsta kosti einu sinni á ári. Það, sem þeir eiga að skrifta fyrir presti sínum, er ekki almennur breyskleiki, eða syndugt líf yfir- leitt, heldur öll ákveðin afbrot, sem þeir hafa á samvizkunni, og sérstaldega stórsyndir, “dauðasyndir” svo kallaðar; því að á þeim afbrotum fæst ekki full fyrirgefning hjá Guði, segir katólska guð- fræðin, nema menn þiggi aflausn af skriftaföður sínum fyrst. En aflausnin er því skilyrði bundin, að presturinn hevri áður fulla og hreinskilna játningu svndarans og leggi á hann viðeigandi ögun eða hegningu. Kenning þessi gjörir því skriftirnar að sakramenti, nauðsyn- legu til sáluhjálpar; og góðir menn og guðræknir á katólska vísu bera sjálfsagt djúpa lotningu fyrir athöfninni. En mótmælendum veitir nokkuð erfitt að sjá þar mikinn helgidóm í, eins og venju- lega er með skriftirnar farið, að sögn, í þeirri kirkju. Skrifta- menn safnast saman á tilteknum tímum frammi fyrir skriftaklef- anum. ganga þar inn einn og einn og mumla játningu synda sinna í gegnum gat á vegg eða þili, í eyra prestsins, sem situr þar fyrir innan, hlustar á játningarnar og gefur þau ráð eða segir fyrir um syndabætur þær, sem honum þykir við þurfa, og mælir fram af- lausnarorðin, nema skriftamaður eigi að fullnægja einhverjum skilyrðum áður, sem honum eru sett. Útdráttur úr kaflanum fylg- ir hér. Þegar iðrandi syndarinn kemur inn í skriftastúkuna, segir Barrett, þá er eins og hann sé lokaður inni í þröngum og dimmum fangaklefa. Ótti sá eða blygðun, sem hann hefir fundið, til áður, eykst nú því meir, sem hann þarf lengur að bíða, áður en spjaldið er dregið frá og hann sér grilla í andlit prestsins í gegn um grind- urnar. Það er eins og spennandi sjónleiks-upphaf, þegar þetta

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.