Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 17
47 þjóÖir allar, er reynt hafa algert vínbann, hafa nú fallið frá því, aÖ undanskilinni hinni amerísku þjóÖ. Pinnland rak lestina með miklum meirihluta á móti vínbanni um áramótin síðustu. Ætlar nú eftir því sem blöðin skýra frá að reyna nýtt fyrirkomulag, sem virðist í einlægni eiga að miða að því að takmarka ofdrykkjubölið með þvi að afnema tækifæri til þess að græða á því að ota áfengi að fólki. Ríkið mun ætla að taka að sér tilbúning, innflutning og útsölu áfengis án hagnaðar og leyfa útsölu þess matsöluhúsum og öðrum einungis á þeim grundvelli. Sé rétt skýrt frá þessu, yrði ekki þannig nein hvöt til þess að ýta út vörunni eins og raun hefir verið á, þegar um mikinn hagnað hefir verið að ræða. Verður þessari tilraun Finna veitt nákvæm eftirtekt, þvi sé það unt að af- nema alla ábatavon í sambandi við áfengið, er mikið fengið. En eigi ríkið að hafa áfengið fyrir féþúfu, er það að festa verzlunina án tillits til þess hvort hún er þjóðinni til heilla eða ekki. En á þeim grundvelli verður aldrei leyst úr vandanum í þessu efni. En hvað sem öllum lögum líður, ætti það að vera öllu kristnu og velhugsandi fólki ljóst hvílík þörf er á því að stemma stigu við böli því, sem áfengið hefir í för með sér í öllum löndum. Sé vínbann ekki heppilegasta aðferðin til að hnekkja ofdrykkjunni, verður að finna aðra aðferð, er gefst betur. En mikið af bar- áttunni gegn vínbanninu í Bandaríkjunum er auðsjáanlega sprott- ið af óheppilegum hvötum og hirðir ekki um að taka allan sann- leikann til greina. Það hefir eflaust verið sök bindindisvina að treysta of mjög á lög og láta falla niður um of stöðuga viðleitni að skapa og hakla við heilbrigðu almenningsáliti. En fagur er sá draumur að einhverntíma verði þjóðirnar svo þroskaðar að ein- dregið almenningsálit líti einnig á það, sem heill fjöldans krefst. Af þeim rótum er vínbannshreyfingin sprottin—vegna þess a5 áfengissalan hefir virt það að vettugi. K. K. Ö.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.