Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 20
50 dygg samtíð sinni, þorir hún að vera í minni hluta og líða andmæli og álas. Skoði hún stefnu eða kenning ósamhljóða anda Guðs og orði, er lútersk kirkja þeirra stefnu andvíg. Hið mannlega fellur eða stendur eftir aðstöðu þess við Guðs orð. Meiri hluti eða minni hluti mannanna er henni lítilsvirði. “Hér stend eg, eg get ekki annað. Guð hjálpi mér,” er hennar einkunnarorð.—Umboð henn- ar er hvorki frá yfirvöldum né alþýðu, heldur frá Guði. Henni er annara um andlegan þroska og líf lærisveina sinna en deilur leiðtoga. Hún er umburðarlynd, án þess þó að láta óátalinn ósann- an frið eða öfgakenningar. Hún byggir á kletti aldanna. Guðs orð er hennar Gíbraltar. Það er hennar frægð og hennar styrkur. En fyrir það er henni einnig álasað. Því hefir hún einatt verið krafin reikningsskapar af valdhöfum veraldarinnar, sem í önd- verðu. Og ef nauðsyn ber til, mun hún enn ítreka hina hógværu en minnistæðu játningu Lúters: “Hér stend eg.”— Lútersk kirkja hefir kostgæfilega reynt að eignast kjarnann í erindi Krists, eða hjarta kristindómsins. Eins og góð móðir gefur hún aftur börnum sínum það hjarta sitt. Einkum hefir einingarandinn náð til lúterskra manna síðari árin. Fyr voru kirkjudeildir og þjóðir, er aðhyllast lúterska trú, um of einangraðar. Fór þeim títt sem “frjálsræðishetjunum” forn-íslenzku í hinu fræga kvæði Jónasar Hallgrímssonar, að þeim óx andríki og fræð og “undu svo glaðir við sitt.”— Aftur er viðkvæði kirkjunnar i síðustu tíð: Allir eitt. Andi íslenzka skáldsins er kvað: “Hvað má höndin ein og ein, allir vinnum saman,"—er að ná haldi á hugum manna um heim allan. Á síðari árum hafa lúterskir menn frá nálega öllum löndum heimsins haldið nokkur allsherjarþing. Hið íyrsta var háð í Eisenach, á Þýzkalandi, 19. ágúst, 1923. Mættu þar um 200 full- trúar frá 42 þjóðum og ríkjum. Á síðasta þingi lúterskra manna í Kaupmannahöfn, 1929, var kosin miðstjórn lúterskrar starfsemi í heiminum. Er Dr. Tohn A. Morehead í New York, formaður hennar. Dr. Morehead heimsótti kirkjuþing lúterskra íslendinga í Vesturheimi, 1925, sem fulltrúi United Lutheran Church in America. —Nú telst lútersk kirkja mannflest og áhrifamest, næst kaþólskri kirkju. Elcki verður þó enn sagt um lúterska menn, að þeir séu allir eitt. En margt ber þó þess vott, að þeir og aðrir kristnir menn skilji nú betur en fyr, þessi orð Jesú í æðstaprests- bæninni: “Allir eiga þeir að vera eitt.” ]. A. S.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.