Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 34

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 34
Cn En tíminn leyfði mér ekki a8 horfa lengi yfir svæði þetta. FerÖinni var heitið til Erfurt, og dagurinn var stuttur. Það hafði snjóað síðastliðna nótt. Húsþökin í Eisenach voru hvít; turnar og stöplar líktust alabastur. Þunn himna hvíldi yfir engjum og hálendi. Trén voru búin hrím-litu fiðri.— Leið mín lá gegn um skóga og rjóður. Vegalengdin var þrjá- tíu mílur. Veðrið var bjart og loftið létt, eins og mitt eigið hjarta Skuggar grenitrjánna breiddu sig yfir snjóinn. Það marraði glað- lega í snjónum undir fótum mér. 1 rjóðrunum sáust smá greinar trjánna bera við heiðríkjuna, eins og svartir ritblýsdrættir. Alt bar hreinan og skýran og ákveðinn svip. Þannig vildi eg að líf mitt gæti verið. Eg vissi að eg þráði háan og hreinan tilgang með lífí mínu. Framh. Preátafélagsritið Ársrit Prestafélagsins á íslandi er bæði stórt og merkilegt rit. Ritstjórinn er og hefir frá upphafi verið prófessor Sigurður P. Sívertsen, háskólakennari og vigsluhiskup, en fjöldamargir ágætir menn leggja þar og hönd að verki. Þetta er þrettánda árið, sem ritið kemur út, og er ekki eftirbátur sinna fyrirrennara. Efnið er margbreytilegt og mest tímabært. Sjálfur leggur ritstjórinn ti! f jórar góðar ritgerðir, og er einkum sú um Lambeth-fundinn 1930 einkar fróðleg. Er og í ritinu útdráttur úr gjörðabók fundar- ins og þýðingar, meistaralega gjörðar, af ályktunum fundarins um guðfræði og starfsmál. “Kirkjan og verkamannahreyfingin” heitir vönduð og timabær hugvekja eftir Ásmund Guðmundsson háskólakennara. Er þar sagt frá því máli af svo mikilli sanngirni, að fyrirmynd má kalla. Einstaklega skemtileg er ritgerð leikmannsins Kristleifs Þor- steinssonar um “Húsafell og Húsafellspresta.” Um hinn nýlátna erkibiskup Svia, Nathan Söderblom, ritar biskup Jón Helgason langt og vandað mál, samboðið þeim mikla kirkjuhöfðingja, sem allur kristinn heimur tfegar. Margar fleiri ágætar ritgerðir eru í ritinu. svo og ljóð og sálmar, myndir og minningar, ritdómar og bókaskrá. —B. B. J.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.