Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.02.1932, Blaðsíða 12
42 sem verst með sjálfa sig. Þeir virðast hafa einhverja nautn af að gjöra sem allra mest úr eigin synd og spillingu. Þá er ekki fátt af málrófsmönnum, sem endurtaka sömu orðin upp aftur og aftur, þangað til manni verður flökurt. En sá kvillinn, sem algengastur er í sambandi við skriftagöngur, er áhyggjuveiklun sú eða hugar- víl, sem skriftafeður eru vanir að kalla “smámunasemi.” Ekki mega menn þó ráða j?að af þessum orðum mínum um óholl áhrif skriftagöngunnar á sumar lyndiseinkunnir, að eg telji skriftirnar óheilnæmar yfirleitt. Eg veit ekki af neinum þeim merkjum er votti slíkt. Skriftirnar hugga og friða mikinn þorra katólskra manna, þeir finna þar fróun, bæði yfirnáttúrlega og náttúrlega. Eg vil ekki taka dýpra í árinni, en aðeins benda á það, að skriftaathöfnin sé svo einskorðuð, svo smíðiskend, svo bundin lagaákvæðum, að hún geti ekki orðið skoðuð sem fullnægjandi vegur til hugarléttis fyrir þá, sem eitthvaö amar að; og hitt annað, að þær gjöri sumu fólki meira ilt en gott, sérstaklega þeim, sem haldnir eru af einhvers konar áhyggjuveilindum eða hugboði um eigin lítilmensku. G. G. Vínb ann og áfengissala Það hefir lengi verið eitt af stór vandamálum þjóðanna hvern- ig fara eigi með áfengi. Ofdrykkja og alt það böl, sem henni fylgir, hefir vakiö menn til meðvitundar urn hve mikið er í lnifi í sambandi við meðferð áfengisins. Óhindruð áfengisverzlun fékk lengi að njóta sin um heim allan, en afleiðingarnar urðu þannig að mönnum tók að ofbjóða. Á ýmsan hátt heíir verið reynt að stennna stigu þeirra. Ein aðferð er að innræta mönnurn bindindis- semi, með ])ví að útbreiða þekkingu á skaðsemi áfengis og jæim hættum, sem notkun þess fylgir, og vekja þannig hjá einstakling- unum sjálfstæði til þess að sneiða sig hjá því. Hefir ])essari að- ferð verið beitt með miklum og góðum árangri. En ])egar svo hefir verið komið í einhverju mannfélagi að bindindisstefnan hefir átt sterk ítök í almenningsálitinu, hafa menn talið það ófært að leyfa áfengissölunni að halda áfram þannig að ekki væri á annað litið en peningagróða þeirra er að henni standa. Vakandi sið- ferðisvitund hefir fundið til þess aö velferð almennings ætti að ganga á undan gróðafýkn þeirra, er litlu skeyta afíeiðingum af því að spila á veikleika bræðra sinna og systra. A þessum grund-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.