Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1932, Side 10

Sameiningin - 01.02.1932, Side 10
40 ast bezt á því, sem óneitanlegt er, að katólskir menn þjást af þeim kvillum ekki síður en aðrir. Og á meðal taugaveiklaðs fólks í þeirri kirkju er eins margt af prestum og nunnum að tiltölu eins og af leikmannalýðnum. Að skriftamálin eru “í molum” flýtur af venju þeirri, sem studd er af kirkjunni, að menn játa þar sérstakar syndir, því nær eingöngu. Drýgi katólskur maður einhverja stórsynd, þá er honum ætlað að játa hana fyrir prestinum í ilýti, án þess að gjöra nokkra grein fyrir sambandi hennar við lífsvefnað sinn yfirleitt. Af þessari ástæðu verða skriftirnar ófullnægjandi í samanburði við verslega sálarkrufningu; þær leiða ekki sálarlífið í ljós í heild sinni, og hjálpa því mönnum mjög lítið til að skilja sjálfa sig fyllilega. Hvort sem katólskir menn finna hjá sér iátningarþörf eða. ekki, þá skipa kirkjulögin þeim að ganga til skrifta einu sinni á ári að minsta kosti; en þeirri venju er haldið að þeim mjög sterk- lega, að skrifta einu sinni á viku, eöa ekki sjaldnar en mánaðar- lega. í sambandi við skriftir katólskra manna er ekki að ræða um djúpa þörf sérstaklega, eða um það að velja sér tíma eða aðferð eftir eiginni tilhneigingu. Kirkjan annast um stað og stund og setur nákvæmar reglur um aðferðina, en gefur eðlilegri hvöt eða löngun einstaklingsins lítið sem ekkert svigrúm. Eins og bent var á, er aðferðin eða reglugjörðin alt annað en einföld; og svo eru fræðigreinir, sem segja til um það, hvers konar syndir skuli játa, og hvernig. Og út af sumum syndum eru þau skilyrði sett fyrir aflausninni, að hún fæst ekki nema með auðmýkingu mikilli og erfiðleikum. í einu orði sagt, skriftakenningin katólska er svo ströng og kröfuhörð, að kirkjunnar börn hljóta oft hugarangur fremur en huggun, jafnvel þó þeim hafi “tekist vel” með skrift- irnar. Og það er mjög liklegt að margir katólskir menn endi æfi- skeið sitt án þess að hafa. fundið þá fróun í skrifta-athöfninni, sem öðrum út í frá virðist hún líkleg til að veita. Ef til vill er ekki úr vegi að minnast sérstaklega á eina hlið þess annmarka, sem eg vil nefna mannaverksbraginn á skriftunum. í einu atriði sérstaklega gengur athöfnin í bága við venjuiegar manneðliskröfur, svo að sá, sem skriftast, finnur ekki þá fróun, sem hann leitar eftir. Oft og tíðum vill svo til, að það sem er skriítamanninum mest alvörumál og færa honum dýpstrar angistar, er frá guðfræðilegu sjónarmiði alls ekkert skriftamál; og þá verður skriftafaðirinn að benda manninum á það, að slíka hluti eigi ekki að ræða í skrifta- stúkunni. ÞaS kom til mín rnóðir,—svo að eg nefni atvik úr eigin

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.