Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1932, Page 24

Sameiningin - 01.02.1932, Page 24
54 nafn af á himni og jöröu, aÖ hann gefi yður af ríkdómi dýrÖar sinnar aÖ styrkiast fyrir anda sinn að krafti hið innra með yður, til þess að Kristur megi fyrir trúna húa í hjörtum yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika, svo að þér fáið, ásamt öllum heilögum, skilið, hver sé breiddin, lengdin, hæðin og dýptin og komist að raun um kærleika Ivrists, sem yfirgnæfir þekkinguna, og náið að fyllast allri Guðs fyllingu”— Ef. 3,14-19. “Hfefi eg þess vegna ekki heldur látið af að - - biðja Guð Drott- ins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa yður anda speki og opinberunar, svo að þér fáið gjörþekt hatín, og að upplýsa sálarsjón yðar, svo að þér skiljið, hver sú von er, sem hann hefir kallað yður til, hver ríkdómur þeirrar dýrðar, sem hann ætlar oss að erfa meðal hinna heilögu, og hver hinn yfirgnæfandi mikilleiki máttar hans gagnvart oss, sem trúum.” Ef. 1, 16-19. “En Guð, sem veitir þolgæðið og huggunina, gefi yður að bera sama hug hver til annars að vilja Krists Jesú, til þess að þér samhuga með einum munni vegsamið Guð og fcður Drottins vors Jesú Krists.” Róm. 15:6. “En Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda.”—Róm. 15, 13- “Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drotni vorum Jesú Kristi, sem gaf sjálfan sig fyrir syndir vorar, til þess að frelsa oss frá hinni yfirstandandi vondu öld, samkvæmt vilja Guðs vors og föður. Honum sé dýrð um aldir alda, Amen.”— Gal. 1,3-5. BAUGABROT Það er nokkurn veginn vist, að enginn maður er mikið betri en bækurnar, sem hann les.—Potter. Mundu það, að á fullorðins árunum verður þú svipaður því sem þú ert nú, á drengsaldrinum. Þá þarft þú að hlýða lögunum, svo að það er bezt fyrir ])ig að temja þér löghlöðni nú.—Coolidge. Sum ritin í biblíunni eru að sjálfsögðu dýrmætari en önnur; en þó er þar engin bók, sem ekki geymir einhvern gimstein frá- bæran; eitthvert listsmíði, sem aldrei fyrnist. Til dæmis, — ef einhver maður væri spurður, hvert ritið í biblíunni væri óaðgengi- legast, þá gæti hann vel svarað; Levitíkus, þriðja bók Móse. En þó er það einmitt í þeirri bók að vér finnum fyrst þetta lagaboð: “Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.”—William Lyon Phelps. “Jesúm þekki eg og Pál kannast eg við; en hverjir eruð þið?” sagöi illi andinn við særingamennina, syni Skeva prests (Post.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.