Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1932, Page 25

Sameiningin - 01.02.1932, Page 25
55 19) 15)- Og þokaSist hvergi fyrir þeim. Skyldi “andaverur vonzk- unnar” tauta eitthvaS svipaÖ, þegar sumir nútíma prestar, “víÖ- sýnis” og lausir á kostum, beita sinni kyngi gegn því, sem ilt er? Sá, sem ekki vill trua ööru en því, sem hann skilur, hlýtur annaÖ hvort aÖ hafa tröllaukinn skilning eða lítilfjörlega trú.— Colton. Ástúð og glaðlyndi eiga að ganga á undan öllu siðgæði. Æðstu skyldurnar innibinda þær dygðir. Ef siðgæði þitt er dapurt og drungalegt, þá er eitthvað rangt viö það, áreiðanlega. Ekki segi eg, að þú skulir þá varpa frá þér slíku siðgæði, ef þú hefir ekkert betra; en þú skalt þá að minsta kosti halda því leyndu, eins og það væri löstur, svo að það gjöri ekki öðrum lífið leitt.— R. L. Steven- son. G. G. Verið hughrauélir “Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drott- in.” (Sálm. 27 :i4). Eitt af þeim vandaverkum, er fyrir oss liggja, er að hug- hreysta veika, vonbilaða og þjáða. Oft fer þetta í handaskolum, og einatt þegar mest ríður á, að geta orðið að liði. Ástæðan er sú, að við skiljum einatt ekki verkefni það er á oss hvílir, og vér höf- um eigi sjálfir leitað lmggunar í Guðs orði. Ef til vill erum vér ókunnugir ritningunni. Vér höfum ef til vill aldrei lært að bera alla hluti í bæn til Guðs. Til þess að fallbyssa sé nothæf verður hún að vera hundrað sinnum þyngri en kúlan, sem skotið er. Þannig þarf einnig að vera háttað með líf vort. Vér verðum að ná vissum mæli af Guðs krafti til að verða nothæf fyrir hans verk. Vér getum einungis gefið af því sem vér sjálfir höfum. HJefir þér aldrei sortnað fyrir augum? Ó, hvar erum vér staddir? Þú ert kannske efnalaus, vinalaus og heilsulaus, hefir séð á bak öllu, sem þú áttir. Þú ert að missa kjark og von. Þú ert einnig að tapa trú og niissa sjónar á Guði. Þú hefir lesið: biðjið og ákallið Drottin, en þó sýnist hann hvergi nærri. Hjartað er að fvllast beiskju gegn lífinu sjálfu.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.