Sameiningin - 01.06.1935, Blaðsíða 19
G7
Pálsson, Jón Björnsson, Árni Friðriksson, Páll S. Bárdal, Sig-
urður J. Jóhannesson. Fyrir söfnuð íslendinga í Argyle,
Manitoba: Séra Jón Bjarnason. Fyrir íslendinga í Nýja ís-
landi: Friðjón Friðriksson.
Fundurinn var byrjaður með því að syngja sálminn
númer 42 í hinni nýju, íslenzku sálmabók; þar á eftir flutti
séra Hans Thorgrímsen bæn.
Til forseta fundarins var kosinn Magnús Pálsson og til
vara-forseta Jón Þórðarson; til fundarskrifara var kosinn
Kristinn Ivristinsson og til vara-skrifara Friðbjörn Björnsson.
Forseti setti fundinn kl. 12 á hádegi.
Séra Hans Thorgrímsen lagði fram fjórar greinar þess
innihalds, að þar eð vér íslendingar í Vesturheimi stöndum
á einum og sama trúargrundvelli, þá ættum vér allir að
mynda sameiginlegt kirkjufélag.
Þessar greinar voru samþyktar í einu hljóði.
Safnaðarfulltrúarnir frá Víkursöfnuði, frá Park-söfnuði
og frá söfnuðunum í Manitoba lögðu fram frumvörp til
kirkjufélagslaga.
Eftir að þessi þrjú frumvörp höfðu verið lesin upp fyrir
fundinum, var kosin 10 manna nei'nd til þess að yfirskoða
þau og draga þau saman í eina heild, sem lögð yrði fyrir
fundinn til umræðu.—■
Þá var ldukkan 10 e. h., svo fundi var frestað til næsta
dags.
Hinn 24. jan. kl. 1 e. m. kom fundur saman á ný. Lagði
þá framsögumaður nefndarinnar, Friðjón Friðriksson, fram
frumvarp til kirkjufélagslaga, er nefndin ineð meiri hluta
atkvæða hafði samþykt. —- Eftir að frumvarp þetta hafði
verið rætt og við það gjörðar litlar breytingar voru allar
greinar þess samþyktar í einu hljóði, nema hin 6. grein.
Samkvæmt grein þessari hefir kvenfólk jafnt sem karlmenn
kjörgengi til ársl'undar félagsins og atkvæðisrétt í kirkju-
málum. út af þessu atriði komu fram mjög mismunandi
skoðanir; nokkrir mæltu móti kvenréttinum, en hinir vörðu
hann. Greinin var lengi rædd, og er kl. var orðin 12 e. m.,
var samþykt að fresta fundi þar til eftir guðsþjónustugjörð
næsta dag.
Á sunnudagskvöldið hinn 25. janúar kl. 6 kom fundur
saman á ný og tók aftur til umræðu hina 6. grein kirkjufé-
lagslaga-frumvarpsins. Var loksins gengið til atkvæða um
hana og hún samþykt með 18 atkvæðum. 8 greiddu atkvæði á
móti, 1 fulltrúi var ekki á fundi og tveir greiddu ekki atkvæði.