Sameiningin - 01.06.1935, Qupperneq 76
124
Stór bók yrði það og um margt merkileg, ef safnað væri
í eitt fyrirlestrum þeim, sem fluttir hafa verið á kirkjuþing-
um, þó mjög vegist þeir að vonum misjafnlega á metaskál-
um lífs- og bókmentagildis. En vegna takinarkaðs rúms,
verður að vísa til þeirra í tímaritum kirkjufélagsins: Alda-
mótum, Áramótum og Sameiningunni, þar sem flesta eða
alla þeirra er að finna.
Jafnt sem að fyrirlestrunum, mun þeim, er kirkjuþing-
in hafa sótt, utankirkjumönnum og kirkjulýð, hafa oi'ðið
nokkui' andlegur gróði að umræðum þeim, um trúmál, sið-
ferðis- og mannfélagsmál, sem þar hafa lram farið.
Minnir það á annarskonar en náskylda fundi, sem
tíðkuðust iengi fram eftir árum hjá söfnuðum kirkjufélags-
ins undir umsjón presta þess—trúmála eða samtalsfundi,
eins og þeir voru venjulega kallaðir. Af skýrslum um þá að
dæma, voru þeir oft vel sóttir, og hafa því eflaust stuðlað
að því, að glæða trúarlegan áhuga og efla samvinnuhug safn-
aðarmanna þar sem slíkir fundir voru haldnir, en það var all-
víða.
10. Samband við önnur kirkjufélög
Séra Friðrik J. Bergmann flutti það mál á kirkjuþingi
1897, að kirkjufélagið gengi inn í kirkjufélags-sambandið
“General Council” í Bandaríkjunum. En þó mál þetta væri
síðan tekið fyrir á hverju kirkjuþingi eftir annað um langt
skeið, og vinsamlegar yfirlýsingar í garð nefnds kirkjufél-
ags-sambands væru þráfaldlega samþyktar, varð eigi að því
að kirkjufélagið gengi í það. En ýmisleg samvinna hefir
verið milli kirkjufélagsins og sambandsins. “Kirkjufélagið
hefir notið vináttu-sambands við stórdeild þessa öðrum frem-
ur. Kjörnir fulltrúar þess félags hafa nokkrum sinnum
mætt á kirkjuþingum og sent hefir kirkjufélagið oftar en einu
sinni fulltrúa á þing General Councils. Á skólum þess félags
hafa flestir prestar kirkjufélagsins verið mentaðir. Sunnu-
dagsskóla-rit þess hafa notuð verið í allmörgum sunnudags-
skólum kirkjufélagsins.” (Minningarrit aldarfjórðungs-af-
mælis kirkjufélagsins, bls. 57).
Á síðari árum hefir málið um samband kirkjufélagsins
við önnur kirkjufélög aftur verið á dagskrá á kirkjuþingum.
Hefir til mála komið samband við tvær stórdeildir lúterskar
í Bandaríkjunum “The United Lutheran Church” (en General
Council er nú hluti hennar) og “American Lutheran Con-
ference,” einkum þó hina fyrnefndu. En þó sambandsmál