Sameiningin - 01.06.1935, Side 33
81
vexti á þessum eldrauna-árum, mun þó hiklaust mega segja,
að mest hafi viðgangur þess og aukið fylgi verið því að þakka,
að við stjórnvöl þess sat sá leiðsagnarmaðurinn, sem gæddur
var, að allra dómi, frábærum leiðtogahæfileikum, hverjum
augum, sem þeir hinir sömu kunna að líta á trúarskoðanir
hans.
1895—1904
Á þessu tímabili fór safnaðatala félagsins stöðugt vax-
andi, svo að í lok þess voru þeir orðnir 37 talsins. Er auðsætt,
að kappsamlega hefir verið unnið að útbreiðslustarfsemi
þessi ár, því að á kirkjuþinginu sumarið 1900 gengu ekki
færri en sex nýir söfnuðir í félagið. En eftirfarandi söfn-
uðir höfðu sameinast félaginu á umræddu tímabili: Vestur-
heimssöfnuður í Minnesota (1896), Melanktonssöfnuður í
Mouse River-bj'gð í N. Dakota (1898), Jóhannesarsöfnuður í
Pipestone-bygð í Manitoba (1899), Lúterssöfnuður í Roseau
í Minnesota, Guðbrandssöfnuður í Manitoba, Albertasöfnuð-
ur í Alberta, St. Jóhannesarsöfnuður í N. Dakota, Gimlisöfn-
uður (fyrrum Nyrðri Víðinessöfnuður) og Breiðuvíkursöfn-
uður í Manitoba (1900), Konkordíasöfnuður í Þingvalla-
nýlendu í Saskatchewan og Árdalssöfnuður í Manitoba
(1902), Swan River söfnuður og Trinitatissöfnuður í Mani-
toha (1903), ísafoldarsöfnuður og Hólasöfnuður í Sask-
atchewan (1904). Nokkrir af söfnuðum þessum áttu sér þó
stuttan aklur. Meðal þeirra Lúterssöfnuður í Roseau, sem
lagðist niður árið 1903 vegna brottflutnings íslendinga úr
því bjrgðarlagi.
Nýir prestar höfðu kirkjufélaginu bætst á þessum árum
sem hér segir: Séra J. J. Clemens, sem lauk guðfræðisprófi
á prestaskólanum í Chicago vorið 1896 og vígðist samsum-
ars á kírkjuþingi til Frelsis- og Fríkirkjusafnaðar í Argyle;
séra Rúnólfur Marteinsson, sem einnig hafði lokið guðfræðis-
námi á prestaskólanum í Chicago, prestvígður 1899, og
varð um hríð farand-prestur kirkjufélagsins en 1901 prestur
í Nýja íslandi; séra Pétur Hjálmsson, prestvígður 1903, sem
einnig gerðist trúboðsprestur félagsins; séra Friðrik Hall-
grímsson, sem kom frá íslandi 1903 samkvæmt köllun frá
söfnuðum í Argyle; og séra Kristinn K. ólafsson, sem útskrif-
ast hafði frá prestaskólanum í Chicago og prestvígður var á
kirkjuþingi það ár til safnaðanna í suðurhluta Dakotabjrgð-
arinnar. Hafa þeir allir, einkum þrír þeirra, tekið mikinn og
góðan þátt í starfsemi félagsins; séra Friðrik sem ritari þess