Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1927, Síða 4

Sameiningin - 01.04.1927, Síða 4
Q8 Því er stundum lialdiÖ fram, að sannfæringar-kraft- ur kirkjunnar sé þrotinn, og boðskapur liennar fuli- nægi ekki lengur þeim, sem með brennandi áhuga leita að fullvissunni um eilíft líf. Kirkjunni er ámælt fyrir það, að hún ekki taki í sína þjónustu nýlegar staðreyndir um framhald lífsins. Rétt er það athugað, að ekkert mannlegt má vera kirkjunni óviðkomandi. Kirkjan má ekki lítilsvirða ó- dauðleika-drauma nokkurs manns. Hver eilífðar-þrá er heilög hverjum góðum kirkjumanni. Hver hönd, er bendir til himins, er bróðurhönd. Kirkjunni ber að virða og elska alla “himinfúsa ljóssins vini”. G-ætilega ber henni að athuga hverja rannsókn og þakksamlega taka við hverri sönnun, sem fæst fyrir framiialdi lífsins eftir dauðann. En lifandi kirkja hverfur aldrei frá hinni einu upp- sprettu eilífs lífs, sem er Jesús Kristur. Hún veit sem Pétur, að hann einn hefir orð eilífs 'lífs. Sé boðskapur hennar einhvers staðar lágróma og lasburða, þá er það af því, að í boðskapinn vantar eld og anda Jesú Ivrists. Hverfi Jesús eitt augnablik úr eilífðar-von mannsins, er vonin dauð. Það skal enginn einlægur maður áræða að segja það um sig, eftir að liafa samvizkusamlega at- hugað eilífðar-von sína, að hann hafi slept Jesú, en hald- ið þó voninni óskertri. Það skal og sanasit, að hver sá, sem hefir lifandi trú á Jesú Krist, hefir lifandi vissu eilífs lífs með sjálfum sér. Kraftur kirkjunnar er1 Jesús Kristur. Eilífðar-boðskap kirkjunnar skortir ekki kraft, ef Jesús Kristur er þungamiðja boðskaparins. Svo hefir það verið frá upphafi vega. Postularnir fóru út í heiminn og boðuðu það, að Jesús væri. risinn upp frá dauðum. Á þeim eina grund- velli er kirkjan bygð. Hann er upprisinn og lifandi, sögðu þeir, og færðu fyrir því órækar sannanir. Allir kristnir menn (því að eins eru þeirikristnir) liafa í sál- um sínum fengið sannanir fyrir því, að Jesús er lif- andi; þeir hafa séð hann og þreifað á lionum í bænum sínurn og notið leiðsagnar han.s og aðstoðar á lífsleið-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.