Sameiningin - 01.04.1927, Síða 12
io6
HarmdauSa varS sá mæti maÖur öllum okkur, sem verið
höföum í skóla hjá honum og unnum honum.
HvaÖ eftir annað sótti hann okkur heim, íslendinga. Um
haustiS 1893 kom hann kynnisför til Winnipeg, og prédikaði þá í
kirkju Fyrsta lúterska safnaðar. Var hann þá prestur í Fargo,
N. Dak. Kyntist eg honum þá fyrst og urðum við samferða suð-
ur í Bandaríki. Var eg þá nývígður prestur. Seinna kyntist >eg
honum betur, er eg tvívegis var við nám í skólanum þar sem hann
kendi. Eftir það lágu leiðif okkar saman þrásinnis, og á eg honum
mikiS aö þakka.
Dr. Gerberding var einn hinna virSulegu gesta, er sátu júbil-
þing kirkjufélags vors 1910. Kirkjufélag vort sótti hann aftur
heim á þingi að Mountain 1913. Margir prestar kirkjufélagsins
hafa verið lærisveinar hans. Báru þeir allir virðingu fyrir honum
og unnu honum mikið ; enda var maðurinn merkur og elskuverður.
Dr. Gerberding var fæddur í Pittsburgh, Pa., 21. ág. 1847.
Var því á áttatugasta árinu, er hann lézt. Sóknarprestur hans í
æsku og fermingarfaðir var mikilmennið dr. W. A. Passavant.
Var Gerberding í alla staði lærisveinn þess ágætasta manns lút-
erskrar kirkju í Vesturheimi á síðasta mannsaldri, og í mörgum
greinum eftirmaður hans'. Gerberding gekk í Thiel- og Muhlen-
berg skóla og las guðfræöi viS Mt. Airy skólann í Philadelphia.
PrestvígSur var hann 1876, og varS þá aðstoðar-prestur dr.
Passavants. Söfnuðum þjónaði hann síðar í Pennsylvania, Ohio
og N. Dakota, þar til að hann árið 1894 var gerður prófessor í
kennimannlegri guðfræði við prestaskólann lúter.ska í Chicago
Geendi hann þvi embætti í 26 ár. Árið 1920 varð hann kennari.
við Northwestern Theological Seminary, sem nú er í Minneapolis',
og hélt hann þeirri stöðu þar til í maí árið sem leiÖ. Hafði hann
þá verið prestur í fimtíu ár og guðfræða-kennari í þrjátíu og tvö
ár. Er hann lét af embætti var honum mikill sómi sýndur af kirkju
þeirri, sem hann syo lengi og vel hafði þjónað.
Dr. Gerberding var einn þeirra manna, sem stofnuöu kirkju-
félagið Synod of The North West og var fyrsti forseti þess.
Sama embætti gegndi hann og um eitt skeið í Chicago Synod.
Auk þess sem dr. Gerberding var prestur og prófessor, var
hann með afkastamestu og merkustu rithöfundum kirkju vorrar í
Vsturheimi. Yrði hér oflangt mál, enda óþarft, að telja þær bæk-
ur, er hann hefir ritað. Sumir íslendigar kannast við bókina
“The Way of Salvation in the Lutheran Church.” Er það alþýð-
leg trúfræði eftir lúterski kenningu. Hefir bókin verið prentuð
mörgum sinnum og er afarvinsæl af alþýðu. Æfisögu Passavants
eftir Gerberding eiga og fáeinir íslendingar og Endurminningar