Sameiningin - 01.04.1927, Blaðsíða 25
IIQ
Á víð og dreif.
Fyrir ári síÖan sagÖi dr. Henry Eyster Jaoöbs af sér sem for-
maÖur lúterska prestaskólans í Mount Airy, sem nú er einn hluti
af borginni Philadelphia, vegna hárrar elli. Dr. Jacobs er á ní-
ræÖis aldri, (í. 1844.). Haföi hann verið kennari við skólann
síðan 1883, en síðan 1895 formaður skólans. ('Var nefndur
“Dean” frá 1895—1920, en síðan “President”J. Dr. Jacobs hefir
verið talinn af mörgum helsti guðfræðingur lútersku kirkjunnar
. í Ameríku, og hefir fengið viðurkenningu ekki einungis innan
sinnar eigin kirkjudeildar, heldur meðal annara kirkjudeilda og
i .Norðurálfunni. Hann hefir ritað fjölda af bókum um guð-
fræðileg og kirkjusöguleg efni, sem getið hafa honum orðstýr
meðal mentamanna. Sem forstöðumaður prestaskólans naut hann
mikilla vinsælda, og hafa áhrif hans í þeirri stöðu verið feikna
mikil. Minnist eg þess að heyra séra Friðrik heit. Bergmann geta
þess hve honum fanst mikið til um dr Jacobs sem kennara. Mun
það hafa verið veturinn 1885—86, að séra FriSrik las guðfræði við
prestaskólann í Philadelphia, og hefir það verið þriðji vetur dr.
Jacobs við skólann. Fór líka álit hans sívaxandi sem kennara og
guðfræðings, og nýtur hann nú í hárri elli ástar og virðingar
kirkju sinnar hinnar lútersku. Margir munu minnast þess, er dr.
Jacobs heimsótti jábilí-þing kirkjufélags vors 1910, sem erindreki
“General Council.” Nú hefir sonur hans dr. Charles Michael
Jacobs verið kosinn eftirmaður föður síns sem formaður presta-
skólans, og verður settur inn í embætti þann 22. apríl næstkom-
andi. á'eröur það mjög virðuleg athöfn, og hefir kirkjufélagi
voru verið boðið að senda erindreka, er komi fram við athöfnina
fyrir þess hönd. Yngri dr. Jacobs hefir verið kennari í kirkju-
sögu og kirkjustjórn við prestaskólann, sem hann nú á að veita
forstöSu, síðan 1913. Hefir hann þegar getið sér hinn bezta
orðstýr bæði s'em kennari og rithöfundur. Má því vænta þess, að
hann skipi með sóma stöðu þá, er hann nú á að taka við.
í Juneau í Alaska er ensk-lúterskur söfnuður, er nefnist “Resur-
rection Lutheran Church.” Telur hann sig norðlægasta ensk-lút-
erska söfnúð í heimi. Á sá söfnuður mikinn þátt í ]iví atS farið
er að koma út lúterskt kirkjublað í Alaska, er nefnist “Alaská
Lutheran Messenger”. Séra P. E. Baisler, er um eitt skeið þjón-
aði í Winnipeg, hefir verið aðal-driffjöðrin í því að koma þessari
útgáfu til leiðar. Starfar hann sem “Field Missionary” á þeim
slóðum.