Sameiningin - 01.04.1927, Side 26
120
Þaö þótti mikiö afreksverk, þegar ung stúlka frá New York
borg, Gertrude Ederle, synti yfir breska sundiÖ, í haust er leiS.
Ungfrú Ederle er af dönskum ættum, en er uppalin í New York
borg. En engu síður er þaö ánægjulegt að vita, að hún i öðru til-
liti er fyrirmyndar s'túlka. Hún er uppalin og fermd i ‘‘Grace
Lutheran Church” í New York, og ber prestur safnaðarins, J. A.
Weyl, henni þann vitnisburð, að hún sé kristileg fyrirmynd ung-
menna. Hún ræki frábærlega vel guðsþjónustur kirkju sinnar, og
sé í öllu tillití dygðug og góð stúlka. Hún kvað vera jafn alþýð-
leg síðan hún gat sér frægð og áður.
E. D. Euler, sem er tollmálaráðherra í núverandi sambands-
stjórn Canada, er áhugamikill og starfandi meðlimur lútersku
kirkjunnar. Hann tilheyrir St. Matthews kirkjunni í Kitchener,
Ont. Mun hann vera fyrsti meðlimur lútersku kirkjunnar, s'em
skipar ráðherrasess í sambandsstjórn Canada. Hefir hann átt
sæti á sambandsþinginu síðán 1917. ,
Biskup nokkur frá Bandaríkjunum, Winchester að nafni, fór
í sumarfrii sínu í fyrra til íslands. Séð hefi eg ummæli eftir hon-
um um Island og Islendinga, sem eru i hæsta máta lofsamleg:
Telur hann íslendinga vel mentaða og trúhneigða, en bætir við
þeirri meinloku að telja biskupinn í Reykjavík og “prestinn” til-
heyrandi dönsk-svensku lútersku kirkjunni.
Hebron lúterski söfnuðurinn í Madison County, Virginia, tel-
ur sér elstu lútersku kirkjuna í Ameríku. Kirkjan var bygð 1740,
en seinna flutt til. Altarisgöngu áhöldin komu frá Frakklandi
1739. Orgelið, sem notað er í kirkjunni, er 180 ára gamalt.
K. K. Ó.
Fundinn meistarinn,
Ljóðið gullfagra, sem fer hér á eftir, lásum vér í ensku
tímariti og birtum það hér í þeirri trú, að margir hafi yndi af
því, þó á ensku máli sé, og í von um, að einhver kunni að þýða
það á íslenzku.—Rítstj.
I MET THE MASTER.
I had walked life’s way with an easy tread,
And followed where comforts and .pleasures led,