Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1927, Síða 17

Sameiningin - 01.07.1927, Síða 17
207 H'elgi bjóla, Helgi magri, Jörundur kristni, Þórleifur kristni í Krossavík, Ketill fifls'ki og fleira göfugra landnámsmanna voru kristnir menn. Þótt Island megi teljast heiðiÖ þjóðfélag nær hundrað ár, er auSsætt af sögunum, að heiðindómurinn var þá eklíí lengur það lífsafl, sem svaramenn hans nú eigna honum. Eg held að hér eigi við að nefna alkunnasta og ágætasta manninn i heiðnum sið á sögutíð íslendinga, og það því fremur, að frá honurn er það sagt, að hann kunni eigi að ljúga. Eg hygg að neitunin neiti því naumast, að Njáll Þorgeirsson hafi verið vitur maður. Eg er engan veginn viss um, að vitsmunaþroski nú- tíSarinanna taki fram brjóstviti Njáls. Og Njáll var alinn upp í heiðnum sið. Hann hafði betri skilyrði en vér, til að dæma um þessa fornu feðratrú. Hvað segir saga Njáls um álit hans í því efni? “Þat mæltu margir menn, svo Njáll heyrði, at slíkt væri mikil firn at hafna fornum sið ok átrúnaði. Njáll sagði þá: Svá lízt mér, sem hinn nýi átrúnaðr muni vera MIKLU BBTRI ok sá muni sæll cr hann fær heldr. Ok ef þeir koma út hingat ftil íslands), er þann sið bjóða, þá skal ek þat vel flytja.” ”Hann mælti þat oft,” bætir sagan við. Þó var Njáll enn í tölu heiðingja og heiSnu umhverfi, er hér var komið sögu. Það var og einn prestur heiðninnar, Þorgeir goði, er kvað upp úrskurðinn mikla á alþingi íslendinga iooo, um ein lög og eina trú á þessa leið: “Þat er úpphaf laga várra,. at menn skulu allir vera kristnir hér á landi ok trúa á einn guð—föðr ok son ok anda helgan— enn láta af allri skurðgoðavillu.” Þegar þessi framkoma Njáls og Þorgeirs er athuguð, og bor- in saman við ummæli og atfarir íslenzkra framsögumanna and- kristninnar á vorri tíð, á eg örSugt með að sjá frá sannsögulegu sjónarmiði mikla framþróun í því efni, þó um nálega þúsund ára umbótaskeið sé að ræða. Eyr í þessum þætti vitnaði eg í orð dr. Finns Jónssonar, er telur blót heiðinna fslendinga á io. öld, fremur höfð um hönd fyrir siða sakir etiaf trúarþörf. Eg er að vona, að dreymi nokk- ura vor á meðal um viðreisn heiðninnar, hugsi þeir til þessara orða dr. Finns: “Sjálf heiðnin, goöatrúin, bar banamein sitt í sér og hlaut að falla fyr eða síðar, jafnskjótt sem nógu djarfur og duglegur kristniboði kom til sögunnar.”

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.