Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1927, Blaðsíða 29

Sameiningin - 01.07.1927, Blaðsíða 29
219 biblíunnar, datt mér í hug aö stinga niöur penna til aö fljóta þar rneö. Ekki samt í verölauna skyni; eg býst ekki viö þeiim og kæri mig ekki um ]>au. En hugmyndin er svo góð og göfug, að mönnum ætti aö vera ljúft að sinna því máli. Eins og öllum er Ikunnugt, er gamla testa mentiö trúarbók Gyöinga, en öll biblían trúarbók vor kristinna manna. Enda er hún öll innblásin af Guöi og því nytsöm til fróðleiks uppörf unar, viövörunar og þekkingar á sann'leikanum. Mér hefir hugkvæmst að minnast með fáum otðum á Davíðs sálma; þeir eru mér hugljúfastir allra rita gamla testamentisins, enda er eg þeim einna kunnugastur. Davíð konungur er að mínu áliti dá- samleg fyrirmynd fyrir syndfallna menn. Og sálmarnir eru þrungn- ir alt í gegn af lofgjörð og lotningu fyrir hátign Guðs, almætti, speki og gæzku—og þá trúartraustið og tilbeiðslan. Sálmarnir byrja með því að sýna manni hvað sæluríkt og inndælt það er, að lifa guðelsk- andi lífi, og einnig hvað blessunarriikt það 'sé að leggja stund á dygðir og ráðvendni. En Davíð endar fyrsta sálminn með þeirri aðvörun, að vegur óguðlegra sé slys. Og í fjórtánda sálminum -segir hann: iHeimskinginn segir í sínu hjarta. “Þar er enginn Guð til.” Og svo lýsir hann því, hve breytni slíkra nfanna sé óguðleg. í sálmdnum tuttugasta og þriðja lýsir Davíð hinni náðarríku handleiðslu Guðs á börnum sínum. Davíð hafði verið hjarðsveinn hjá föður sínum og þekti því vel hvað hjörðinni leið þegar féð beit og bældi sig í grænu og góðu haglendi við hægt rennandi vatn. Hann hefir víst ekki þekt neitt, sem betur ætti við að samlíkja við líf þeirra mánna, sem af öllu hjarta gefa sig i Guðs vald og náð og hvílist.í hans miskunnar akri við uppsprettulindir hins lifandi vatns. Og svo þetta óbifanlega traust á náð Guðs og handleiðslu, til dæmis þar sem hann segir: “Drottinn er miitt ljós og mitt frelsi, hvern á eg að hræðast? Drottinn, hann er vörn míns lífs, fyrir hverju á eg að skelfast?” (Sálm. 27,1 og 2.) Sálmurinn hundraðasti og þriðji byrjar svo: Lofa þú Drottin, sála mín! og alt hvað í mér er, hans heilaga nafn. Lofa þú Drottin, sála min! og gleym ekki öllum hans velgjörðum. Hans, sem fyrir- gefur .þér þína synd og læknar þína veiki.” (1-30.) Og svo sálmoir- inn hundraðasti og tíundi (1. v.) Drottinn sagði við minn Drottin, settu þig mér til hægri handar þar til eg legg óvini þína að skör fóta þinna. Svona hljómar lofsöngur fjölda sálma. Tökum sálminn hundrað og -seytjánda; hann hljóðar svo: “Lofið Drottin allar þjóðir; vegsami hann allir lýðir, því hans miskunn drotnar yfir oss, og Drottins trú- festi er eilíf. Lofið Drottin !” “Hvernig getur sá ungi haldið sínum vegi hreinum ? Með því að halda sér við þitt orð.” (Sálm. 119,9.). Og allur sá sálmur er hinn yndislegasti. Hann er í 22 greinum. Þá er sálmurinn 139 dásamleg útmálun og lofgjörð, um nærveru Guðs og handleiðslu, almætti speki náð og fniskunn.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.