Fréttablaðið - 28.03.2011, Side 4
28. mars 2011 MÁNUDAGUR4
GENGIÐ 25.03.2011
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,9525
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,03 114,57
183,57 184,47
161,43 162,33
21,641 21,767
20,468 20,588
17,972 18,078
1,4028 1,4110
180,82 181,90
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
EFNAHAGSMÁL Fjögurra manna sér-
fræðinganefnd Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins um skattamál er stödd hér
á landi til að ræða við stjórnvöld og
hagsmunaaðila um skattkerfið og
mögulegar breytingar á því. Í kjöl-
farið mun nefndin skila skýrslu um
efnið.
Vinnan er liður í samstarfi stjórn-
valda og AGS og fór hliðstætt starf
fram á síðasta ári.
Meðal þess sem nefndin skoðar
sérstaklega er hvort ráðlegt sé að
hækka sjö prósenta virðisaukaskatt-
sþrepið upp í 25,5 prósent.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins kom sú skoðun sérfræð-
inganna fram á fundi í vikunni að
þeir telja hækkun neysluskatta vel
athugandi. Þar er einkum átt við
hækkun sjö prósenta þrepsins og
hækkun skatta á eldsneyti. Telja
þeir svigrúm til að hækka skatta á
eldsneyti í því ljósi að þeir eru enn
lægri hér á landi en víða í Evrópu.
Undir sjö prósenta virðisauka-
skattsþrepið heyra nú til dæmis
helstu matvæli, bækur, geisladiskar,
heitt vatn og rafmagn. Þá hyggst
nefndin leggja mat á skattlagningu,
verðlagningu og úthlutun afnota af
náttúruauðlindum og yfirfara ýmsa
umhverfisskatta. Ráðleggingar um
endurbætur á núverandi kerfi verða
bornar fram í sumarskýrslunni.
Jafnframt verður lagt mat á þær
breytingar sem stjórnvöld hafa gert
á skattkerfinu, til dæmis þrepa-
skiptingu þess og hækkun fjár-
magnstekjuskatts. Vörugjöld verða
líka yfirfarin og skipting skatttekna
milli ríkis og sveitarfélaga.
Eins og áður sagði er nefndin
hér að ósk stjórnvalda, í samræmi
við efnahagsáætlun og samstarf
þeirra við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Nefndin er skipuð þremur starfs-
mönnum sjóðsins og einum starfs-
manni alþjóðlegrar stofnunar um
skattamál í Hollandi. Hún mun
dvelja hér til mánaðamóta og viða að
sér upplýsingum og eiga viðræður
við stjórnvöld og stjórnmálamenn,
embættismenn, samtök atvinnurek-
enda og launþega og aðra þá sem
láta sig skattamál varða.
bjorn@frettabladid.is
AGS metur hvort rétt
sé að hækka vaskinn
Hækkun neðra þreps virðisaukaskatts og hækkun bensínskatts eru meðal leiða
til að auka tekjur ríkissjóðs, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Auðlindaskattar,
umhverfisskattar og margt fleira er líka til skoðunar. Búast má við skýrslu í júlí.
KÖNNUN Um 86 prósent lands-
manna telja að stefna hefði átt
breskum stjórnvöldum fyrir dóm
vegna beitingar hryðjuverkalaga
gegn Íslendingum í nóvember
2008.
Þetta er niðurstaða könnunar
sem MMR gerði fyrir þjóðmála-
félagið Andríki dagana 8. til 11.
mars síðastliðinn.
Ekki var marktækur munur á
afstöðu kynjanna. Þá taldi meiri-
hluti í öllum aldurs-, menntunar-,
tekju- og kynjahópum að stefna
hefði átt Bretum.
Úrtak var 902 einstaklingar á
aldrinum 18 til 67 ára. Afstöðu
tóku 72,7 prósent. - mmf
Afstaða til hryðjuverkalaga:
Meirihluti vildi
stefna Bretum
VIÐSKIPTI „Staðreyndin er sú að
innan við tuttugu prósent þeirra
sem fengið hafa endurútreikn-
ing húsnæðislána hafa gengið frá
umsókn og sótt ráðgjöf,“ segir Una
Steinsdóttir, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.
Í Fréttablaðinu á laugardag var
sagt frá því að Íslandsbanki hefði
enn ekki skilað útreikningi þriðj-
ungs gengistryggðra húsnæðis- og
bílalána þótt mánuður væri liðinn
frá því fresturinn rann út.
Una segir að þegar búið sé að
endurreikna gengislánin verði við-
skiptavinurinn að panta sér tíma
hjá ráðgjafa til að ljúka málinu.
Viðskiptavinir Íslandsbanka sjá
endurútreikninginn í heimabanka
sínum.
„Við höfum líka verið að hringja
í fólk og í mars voru útibúin opin
lengur á fimmtudögum.“
Innt eftir ástæðu þess að innan
við tuttugu prósent sem fengið
hafi endurútreikning hafi geng-
ið frá umsókn segir Una: „Sumir
halda að þeir geti fengið betri
rétt en við umsóknina. En jafnvel
þótt fólk gangi frá lánunum er
það ekki búið að fyrirgera rétti
sínum.“
Una segir að unnið sé að því að
endurútreikna þau lán sem eftir
standi en það verk muni taka
nokkrar vikur. - mmf
Innan við tuttugu prósent hafa gengið frá umsókn vegna endurútreiknings lána:
Fyrirgera ekki rétti sínum
UNA STEINSDÓTTIR Innan við tuttugu
prósent hafa gengið frá umsókn vegna
endurútreiknings. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
F
R
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
LI
HEITT MÁL Bjarni
Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðis-
flokksins, og Stein-
grímur J. Sigfússon,
formaður VG og
fjármálaráðherra, hafa
tekið margar rimmur
um skattamálin
í þinginu síðustu
misseri.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
16°
11°
8°
15°
12°
6°
6°
19°
14°
18°
6°
29°
2°
17°
15°
2°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða um land.
MIÐVIKUDAGUR
Vaxandi vindur S- og
V-lands þegar líður á
daginn.
3
4
2
5
4
1
21
5 4
4
4
6
4
0
-1
2
2
1
2
-1
5
3
4
2
2
2
3
2
1
6
3
DÁLÍTIL ÚRKOMA
verður norðan og
austan til í dag en
nokkuð víða um
land á morgun.
Það fer svo eftir
hitastiginu hvort
um rigningu,
slyddu eða snjó-
komu verður að
ræða. Snjókoman
verður norðan- og
austanlands en
rigningin um land-
ið sunnanvert.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
SLYS Mannbjörg varð þegar bátur
sökk norðan við Akurey á Sund-
unum við Reykjavík síðdegis á
laugardag. Tveir menn voru um
borð og náðu þeir að senda neyð-
arkall rétt áður en báturinn sökk.
Varðstjórar Landhelgisgæsl-
unnar heyrðu kallið og ræstu
samstundis út björgunarlið.
Mönnunum var bjargað um borð
í Höllu Jónsdóttur, björgunarbát
Slysavarnarfélagsins Landsbjarg-
ar. Báturinn sökk skömmu síðar.
Mennirnir voru blautir og kald-
ir þegar þeim var bjargað. Annar
var lagður inn á gjörgæsludeild
Landspítalans en hann var
útskrifaður í gær. Hinn var betur
á sig kominn. - mmf
Mannbjörg við Akurey:
Útskrifaður af
gjörgæsludeild
LÖGREGLUMÁL Farþegi í fólksbíl
slasaðist þegar fólksbíll og jeppi
rákust saman á Biskupstungna-
braut um tvöleytið í gær. Fólks-
bíllinn var á suðurleið en jepp-
inn á norðurleið þegar slysið
átti sér stað. Engin hálka var á
svæðinu.
Ökumaður fólksbílsins slasað-
ist lítillega. Fjórir voru um borð
í jeppanum og hlutu þeir minni-
háttar meiðsl.
Lögreglan þurfti að loka
Biskups tungnabraut um tíma
vegna slyssins. - mmf
Biskupstungnabraut lokaðist:
Einn beinbrotn-
aði í árekstri
DANMÖRK Lögreglan á Norður-Jót-
landi leitar nú þriggja ára drengs
sem hvarf í gærdag. Drengur-
inn, Holger Kragh, var á gangi
með hópi fullorðinna, þar á meðal
föður sínum, þegar hann hvarf.
Hundruð sjálfboðalið, þyrlur og
leitarhundar leituðu drengsins í
gærkvöldi.
Að sögn lögreglu á Jótlandi
er vonast til þess að drengurinn
hafi lagt sig einhvers staðar en
áður en hann hvarf kvartaði hann
undan þreytu. Finnist hann hins
vegar ekki fljótlega er hætta
talin á því að drengurinn hafi
dottið í einhvern af fjölmörgum
vatnspyttum á svæðinu. - jma
Lögreglan á Norður-Jótlandi:
Leitar þriggja
ára drengs
NEYTENDAMÁL Hrásalat og kart-
öflusalat frá Kjarnafæði hefur
verið tekið úr sölu vegna ófull-
nægjandi innihaldslýsinga. Vör-
urnar innihalda egg en þess er
ekki getið á umbúðunum. Þekkt er
að egg geta valdið ofnæmi og óþoli
hjá ákveðnum hópi neytenda.
Úrbót var gerð á innihalds-
lýsingum varanna frá og með 21.
mars síðastliðnum. Vörum fram-
leiddum fyrir þann tíma eru neyt-
endur með eggjaofnæmi eða -óþol
beðnir að farga eða hafa samband
við Nonna litla ehf. vegna endur-
greiðslu. - jma
Kartöflu- og hrásalat úr sölu:
Ófullnægjandi
innihaldslýsing
OFNÆMISVALDAR Egg geta valdið
ofnæmi og því er mikilvægt að þeirra sé
getið á matvælaumbúðum.
Klífur hæsta byggingu heims
Alain Robert, 48 ára Frakki, ætlar í
dag að klífa hæstu byggingu heims,
Burj Khalifa turninn í Dúbaí. Turninn
er 828 metrar á hæð. Áður hefur
Robert klifið Eiffel-turninn og Óperu-
húsið í Sydney.
DÚBAÍ