Fréttablaðið - 28.03.2011, Blaðsíða 42
28. mars 2011 MÁNUDAGUR26
FÉLAGAR MEÐ PREMIUM ICELANDAIR
AMERICAN EXPRESS® FRÁ
KREDITKORTI GREIÐA EKKERT
ÁRGJALD Í ICELANDAIR GOLFERS
+ Skráðu þig í
Icelandair Golfers á
www.icelandairgolfers.is
Icelandair Golfers er klúbbur
sem auðveldar þér að spila
golf út um allan heim.
Golfsettið
ferðast frítt!
Þú nýtur þessara hlunninda:
þegar þú ferðast með Icelandair.
aðilum Icelandair Golfers.
Iceland Express deild karla
Snæfell-Stjarnan 73-75 (40-38)
Stig Snæfells: Ryan Amaroso 19 (13 frák.), Sean
Burton 18, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12, Zeljko
Bojovic 9, Jón Ólafur Jónsson 7, Sveinn Arnar
Davíðsson 6, Emil Þór Jóhannsson 2.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 20, Justin
Shouse 19 Renato Lindmets 13 (12 frák.), Fannar
Freyr Helgason 8, Daníel Guðmundsson 6,
Marvin Valdimarsson 5, Ólafur Aron Ingvason 2,
Guðjón Lárusson 2.
Staðan er 1-0 fyrir Stjörnuna.
Undanúrslitaeinvígi KR og Keflavíkur hefst í
kvöld með þegar fyrsti leikurinn fer fram í DHL-
höll KR-inga og verður hann í beinni útsendingu
á Stöð 2 Sport. Þetta er í áttunda sinn sem þessi
félög mætast í úrslitakeppninni, Keflavík hefur
fimm sinnum farið áfram en KR hefur unnið
tvisvar þar á meðal 3-0 í síðasta einvígi liðanna
sem var í undanúrslitum fyrir tveimur árum.
Leikurinn hefst klukkan 19.15.
Iceland Express deild kvenna
KR-Keflavík 62-70 (34-32)
Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 13 (10
frák.), Hildur Sigurðardóttir 11, Melissa Ann
Jeltema 10, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
8, Signý Hermannsdóttir 7, Sólveig Helga
Gunnlaugsdóttir 7, Hafrún Hálfdánardóttir 4,
Helga Einarsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Marina Caran 21, Birna
Valgarðsdóttir 14, Pálína Gunnlaugsdóttir 13,
Bryndís Guðmundsdóttir 11, Lisa Karcic 8 (16
frák./3 varin), Ingibjörg Jakobsdóttir 3.
Keflavík vann einvígið 3-1.
Njarðvík-Hamar 79-70 (42-33)
Stig Njarðvíkur: Shayla Fields 30, Julia
Demirer 27 (15 frák.), Dita Liepkalne 16 (8
frák./8 stoðs.), Ólöf Helga Pálsdóttir 6.
Stig Hamars: Jaleesa Butler 36 (12 frák.),
Slavica Dimovska 13 (8 stoðs.), Fanney Lind
Guðmundsdóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir
4, Íris Ásgeirsdóttir 3, Jenný Harðardóttir 2,
Kristrún Sigurjónsdóttir 1.
Staðan er 2-2 í einvíginu. Liðin mætast í
oddaleik í Hvergerði á morgun.
N1-deild karla í handbolta
Haukar - Fram 22-34 (12-18)
Mörk Hauka (Skot): Stefán Rafn Sigurmannson
7 (17), Tjörvi Þorgeirsson 4 (8), Heimir Óli
Heimisson 3 (4), Freyr Brynjarsson 3 (6),
Guðmundur Árni Ólafsson 2 (3), Björgvin Þór
Hólmgeirsson 2 (4), Einar Pétur Pétursson 1 (1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 18/1 (29/5,
39%), Aron Rafn Eðvarsson 0 (4/2)
Hraðaupphlaupsmörk: 4 ( Freyr Brynjarsson ,
Guðmundur Árni 2, Stefán Rafn)
Mörk Fram (skot): Einar Rafn Eiðsson 8/6
(17/8), Jóhann Karl Reynisson 7 (9), Andri Berg
Haraldsson 6 (9), Jóhann Gunnar Einarsson
6 (10), Haraldur Þorvarðarson 3 (3), Magnús
Stefánsson 1 (4), Stefán Baldvin Stefánsson 1
(1), Halldór Jóhann Sigfússon 1 (3), Matthías
Daðason 1 (1).
Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 16 (21/1,
43%), Björn Viðar Björnsson 0 (1)
Hraðaupphlaupsmörk: 5 (Stefán Baldvin 2,
Jóhann Karl 2, Jóhann Gunnar)
ÚRSLITIN
KÖRFUBOLTI „Ég var vanur því að
skjóta frá þessum stað á æfing-
um og skora í „andlitið“ á Hlyni
Bæringssyni – ég hef því gert
þetta margoft áður,“ sagði Just-
in Shouse, leikmaður Stjörn-
unnar, eftir 75-73 sigur liðs-
ins gegn Íslandsmeistaraliði
Snæfells í undanúrslitum Iceland
Express deildarinnar í körfuknatt-
leik.
Shouse skoraði tvær þriggja
stiga körfur á lokamínútu leiks-
ins og kom gestunum yfir þegar
mest á reyndi. Hann virtist kunna
vel við sig á gamla heimavellinum
en hann lék með Snæfellsliðinu í
tvö ár áður en hann fór til Stjörn-
unnar fyrir þremur árum. „Það
var ekkert fallegt við þetta, ég
var ekki búinn að hitta vel og þar
sem Renato Lindmets var farinn
út af með fimm villur vissi ég að
það yrði erfitt að fara með þetta í
framlengingu. Við getum unnið öll
lið og sjálfstraustið er í góðu lagi
hjá okkur,“ bætti Shouse við en
hann skoraði alls 19 stig í leiknum.
Lokamínútan í Fjárhúsinu í gær
var lygilega spennandi. Renato
Lindmets, einn besti leikmaður
Stjörnunnar, fékk sína fimmtu
villu tveimur mínútum fyrir
leikslok. Staðan var á þeim tíma
69-67 fyrir Snæfell. Pálmi Freyr
Sigurgeirs son skoraði þriggja
stiga körfu og breytti stöðunni í
72-67 fyrir heimamenn og sigur-
inn virtist í sjónmáli. Þá var komið
að hinum magnaða Justin Shouse.
Hann svaraði með þriggja stiga
skoti, 72-70, þegar 40 sekúndur
voru eftir. Hann bætti við öðrum
þristi þegar 18 sekúndur voru eftir
og kom Stjörnunni yfir, 73-72.
Snæfell fékk innkast og virtist
í góðri stöðu að jafna eða komast
yfir. Jovan Zdravevski var á öðru
máli og stal boltanum af Sean Bur-
ton úti á miðjum velli. Brotið var
á Zdravevski, sem hitti úr báðum
skotunum, 75-72 fyrir Stjörnuna.
Zeljko Bojovic fór á vítalínuna
fyrir Snæfell þegar 1,6 sek. voru
eftir af leiknum – hann hitti úr
fyrra skotinu en reyndi ekki að
skora úr því síðara. Amaroso náði
frákastinu og skot hans úr erfiðri
stöðu fór framhjá en hann vildi
meina að brotið hefði verið á sér.
Í leikslok sauð næstum því upp
úr þegar Teitur Örlygsson, þjálfari
Stjörnunnar, og Amaroso skiptust
á vel völdum orðum. Ganga þurfti
á milli þeirra og skilja þá að og er
ljóst að það verður eitthvað mikið
í gangi á þriðjudaginn þegar liðin
mætast öðru sinni.
„Við gerðum ekki það sem við
ætluðum að gera. Byrjunin var
góð, 16-1, en við fórum síðan út
úr því plani sem við lögðum upp
með,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari Snæfells.
seth@frettabladid.is
HEF OFT SKORAÐ FRÁ
ÞESSUM STAÐ ÁÐUR
Justin Shouse tryggði Stjörnunni 75-73 sigur gegn Íslandsmeistaraliði Snæfells
með tveimur mögnuðum þriggja stiga körfum á lokamínútunni. Minnstu
munaði að upp úr syði í leikslok. Þetta var fyrsta heimatap Snæfells í vetur.
VAR GÖMLU FÉLÖGUNUM ERFIÐUR Justin Shouse skoraði tvær mikilvægar þriggja
stiga körfur á úrslitastundu í Hólminum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍSHOKKÍ Íslenska kvennalands-
liðið í íshokkí tapaði 1-3 fyrir
Nýja-Sjálandi í fyrsta leik sínum
í 4. deild Heimsmeistarakeppni
kvenna sem fram fer hér á
landi og lýkur 1. apríl. Þetta er
í fyrsta sinn sem svona mót er
haldið á Íslandi. Íslenska liðið
fékk draumabyrjun þegar Birna
Baldursdóttir kom íslenska liðinu
í 1-0 eftir tæplega tíu mínútna
leik eftir að hafa fengið stoðsend-
ingu frá Guðrúnu Blöndal.
Það tók hins vegar stelpurnar
frá Nýja Sjálandi bara rúmar
fjórar mínútur að jafna metin og
þær kimust síðan yfir á 28. mín-
útu og innsigluðu svo sigurinn á
lokamínútunni.
Rúmenía, Suður-Kórea og
Suður-Afríka taka líka þátt
í mótinu og er næsti leikur
íslenska liðsins á móti Rúmeníu á
þriðjudagskvöldið. - óój
HM kvenna í íshokkí í gær:
Tap í fyrsta leik
KOMUST Í 1-0 Íslensku stelpurnar fagna
hér marki sínu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Kiel og Rhein-Neckar
Löwen eru í góðum málum í
Meistaradeildinni eftir góða úti-
sigra í fyrri leikjum sínum í 16
liða úrslitum.
Ólafur Stefánsson skoraði 7
mörk þegar Löwen vann 31-28
sigur á Croatia Zagreb en Róbert
Gunnarsson skoraði ekki og Guð-
jón Valur Sigurðsson spilaði
ekki. Aron Pálmarsson skoraði
sex mörk fyrir Kiel sem vann sjö
marka útisigur á danska liðinu
Kolding, 36-29. - óój
Meistaradeildin í handbolta:
Kiel og Löwen í
góðum málum