Fréttablaðið - 28.03.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 28.03.2011, Blaðsíða 40
28. mars 2011 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is ÆGIRINGARNIR Anton Sveinn Mckee og Eygló Ósk Gústafsdóttir settu bæði Íslandsmet á sterku sundmóti í Stokkhólmi um helgina. Eygló Ósk bætti sitt eigið met í 200 metra baksundi en Anton Sveinn bætti 22 ára gamalt met Ragnars Guðmundssonar í 800 metra skriðsundi. Eygló synti á 2:17,83 mínútum en gamla metið hennar var ekki nema hálfsmánaðargamalt. Anton Sveinn synti á tímanum 8:24,54 mínútum en gamla metið hans Ragnars sem var sett í Bonn árið 1989 var 8:28,28 mínútur. A-RIÐILL Þýskaland-Kasakstan 4-0 Klose 2(3., 88.), Müller 2 (25.,43.) Austurríki-Belgia 0-2 Stig liða: Þýskaland 15, Belgía 7, Austurríki 7, Tyrkland 6, Aserbaídsjan 3, Kasakstan 0. B-RIÐILL Armenía-Rússland 0-0 Írland-Makedónía 2-1 McGeady (2.), Keane (21.) - Trickovski (45.) Andorra-Slóvakía 0-1 Stig liða: Slóvakía 10, Rússland 10, Írland 10, Armenía 8, Makedónía 4, Andorra 0. C-RIÐILL Serbía-Norður-Írland 2-1 Slóvenía-Ítalía 0-1 Motta (73.) Stig liða: Ítalía 13, Slóvenía 7, Serbía 7, Eistland 6, Norður-Írland 5, Færeyjar 1. D-RIÐILL Lúxemborg-Frakkland 0-2 Mexès (28.), Gourcuff (72.) Bosnía-Rúmenía 2-1 Albanía-Hvíta-Rússland 1-0 Stig liða: Frakkland 12, Hvíta-Rússland 8, Albanía 8, Bosnía 7, Rúmenía 2, Lúxemb. 1. E-RIÐILL Ungverjaland-Holland 0-4 Van der Vaart Goal (8.), Afellay (45.), Kuyt (54.), Van Persie (62.) Stig liða: Holland 15, Ungverjal. 9, Svíþjóð 6, Moldóvía 6, Finnland 3, San Marínó 0. F-RIÐILL Georgía-Króatía 1-0 Ísarel-Lettland 2-1 Malta-Grikkland 0-1 Stig liða: Grikkland 11, Króatía 10, Georgía 9, Ísrael 7, Lettland 4, Malta 0. G-RIÐILL Wales-England 0-2 Lampard, víti (7.), Bent (15.) Hvíta-Rússland-Sviss 0-0 Stig liða: England 10, Svartfjallaland 10, Sviss 4, Búlgaría 4, Wales 0. H-RIÐILL Kýpur-Ísland 0-0 Lið Íslands: Stefán Logi Magnússon - Birkir Már Sævarsson, Kristján Örn Sigurðsson, Hermann Heiðarsson, Indriði Sigurðsson - Aron Einar Gunnarsson, Eggert Gunnþór Jónsson - Rúrik Gíslaon (63., Alfreð Finnbogason), Gylfi Þór Sigurðsson (90., Birkir Bjarnason), Jóhann Berg Guðmundsson (59., Arnór Smárason) - Heiðar Helguson. Ónotaðir varamenn: Helgi Valur Daníelsson, Ólafur Ingi Skúlason, Bjarni Ólafur Eiríksson og Haraldur Björnsson. Noregur-Danmörk 1-1 Huseklepp (81.) - Rommedahl (27.) STAÐAN Noregur 4 3 1 0 6-3 10 Portúgal 4 2 1 1 10-7 7 Danmörk 4 2 1 1 5-4 7 Kýpur 4 0 2 2 5-8 2 Ísland 4 0 1 3 2-6 1 NÆSTU LEIKIR Portúgal-Noregur 4. júní Ísland-Danmörk 4. júní Noregur-Ísland 2. september Kýpur-Portúgal 2. september Ísland-Kýpur 6. september Danmörk-Noregur 6. september I-RIÐILL Spánn-Tékkland 2-1 David Villa 2 (69., 73. víti) - Plasil (29.) Stig liða: Spánn 12, Tékkland 6, Skotland 4, Litháen 4, Liechtenstein 0. UNDANK. EM FÓTBOLTI Sara Björk Gunnarsdóttir er nýjasta íslenska landsliðskonan sem semur við lið í sænsku úrvalsdeildinni en hún hefur ákveðið að gera þriggja ára samning við sænsku meistarana í LdB Malmö. Sara Björk hefur verið á reynslu hjá liðinu og leist mjög vel á allar aðstæður en með Malmö-liðinu spilar einnig landsliðsmarkvörðurinn Þóra Björg Helgadóttir. „Ég er mjög spennt fyrir þessu. Ég er ekki búin að skrifa undir en ég fer út á miðvikudaginn, skrifa undir samninginn og flyt inn í íbúðina. Ég var búin að ákveða að vera eitt tímabil til viðbótar með Breiðabliki í viðbót en þegar þetta tilboð kom gat ég ekki annað en stokkið á það. Ég fékk að spila báða leikina í Tyrklandi og var inná allan tímann. Það gekk mjög vel, sem og á æfingunum,“ segir Sara Björk. Sara Björk er búin að vera fasta- maður í íslenska landsliðinu í þrjú ár og hefur þegar leikið 38 lands- leiki þrátt fyrir að vera aðeins tví- tug. Hún er uppalin í Haukum en fór til Breiðabliks á miðju sumar- ið 2008. „Það er ekkert leiðinlegt að fara í svona sterkt lið en það er búið að vera markmið mitt lengi að fara út að spila. Það er ekki slæmt að komast að hjá svona liði. Ég veit að ég á eftir að bæta mig heilmikið þarna,“ segir Sara. „Það er gaman að því hversu margar okkar eru komnar út í atvinnumennsku og við sýnum með því að kvennafótboltinn er á uppleið. Þær eru allar rosalega ánægðar í Svíþjóð og það er gott fyrir mig að heyra það, þar sem ég hafði mikinn áhuga á sænsku deildinni,“ segir Sara, sem átti líka möguleika á að fara til Banda- ríkjanna. „Ég fann ég mig vel með Malmö og kunni vel við þjálfarateymið og stelpurnar. Það skipti miklu máli og ég var bara búin að ákveða mig. Það er líka mjög þægilegt að hafa Þóru þarna úti og nú get ég farið að gera það sem ég hef stefnt að lengi,“ sagði Sara Björk. - óój Sara Björk Gunnarsdóttir er búin að gera munnlegan samning við Malmö: Ekki slæmt að komast að hjá svona liði SARA BJÖRK Er ein besta knattspyrnu- kona landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Íslenska knattspyrnu- landsliðið náði í sín fyrstu stig í undankeppni EM 2012 á Kýpur á laugardagskvöldið þegar liðið náði markalausu jafntefli á móti heima- mönnum. Íslenska liðið átti lengst af undir högg að sækja í leiknum en athygli vakti frábær frammistaða hins þrítuga Stefáns Loga Magnús- sonar, sem var að leika sinn fyrsta mótsleik fyrir Íslands hönd. Stefán Logi var búinn að leika fjóra vin- áttulandsleiki en stóð nú í fyrsta sinn í marki Íslands í mótsleik. Stefán Logi kom sér í sögubæk- urnar í leiknum með því að verja víti og halda hreinu í sama leikn- um en það hafði enginn íslenskur markvörður afrekað í leik í undan- keppnum HM og EM. Stefán Logi varð fimmti markvörðurinn sem nær að verja víti en þeir höfðu allir þurft að sækja boltann í markið sitt í sama leik. „Ég lærði það hjá Gumma Hreið- ars að verja víti,“ sagði Stefán Logi í léttum tón í í viðtali við Arnar Björnsson á Stöð 2 Sport eftir leik og Guðmundur Hreiðarsson var ánægður með sinn mann þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær. „Þetta var frábær byrjun hjá honum og það er í raun og veru erf- itt að byrja mikið betur en þetta. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd að hann hafi fengið verðskuldað tæki- færi með landsliðinu þó að Gunn- leifur hafi verið að standa sig mjög vel og sé góður markmaður. Mér fannst Stefán eiga skilið þetta tæki- færi og hann nýtti það mjög vel,“ sagði Guðmundur. Stærsta próf leiksins var vítið, sem Stefán Logi varð á stórglæsi- legan hátt. „Hann er góður víta- markvörður og hann sýndi það í þessu víti. Hann er með mikinn sprengikraft, mikinn stökkraft og mikið vænghaf. Mér fannst hann líka taka leikmann Kýpur á taug- um. Þetta var föst spyrna og langt frá því að vera auðveldur bolti. Þetta var fast víti og það hefði örugg- lega verið sagt að þetta hefði verið öruggt víti ef að Stefán hefði farið í hitt hornið,“ sagði Guðmundur í léttum tón og bætti við: „Ég sá það strax á honum þegar myndavélin var með hann í nærmynd að hann myndi taka þetta víti,“ sagði Guð- mundur, sem var búinn að heyra í Stefáni Loga og fara yfir leikinn með honum. „Við ræddum saman í morgun (í gær) og fórum yfir leikinn eins og við gerum oft. Við tölum oft saman oft í viku og förum saman yfir leiki. Ég hef þekkt Stefán Loga síðan hann var fimm ára þegar ég var mark- maður í Víkingi og hann var lítill gutti. Mér finnst afskaplega vænt um hann og allt sem hann gerir. Við höfum unnið lengi og vel saman. Við höfum náð mjög vel saman, gengið í gegnum margan dalinn og erum á réttri leið,“ segir Guðmundur. Stefán Logi stóð í marki Hvatar í D-deildinni fyrir rúmum fjórum árum en hefur síðan tekið mörg stór skref og er nú markvörður Lille- ström, eins besta liðsins í norsku úrvalsdeildinni. „Við settum okkur takmark fyrir nokkrum árum og flest sem við lögðum upp með hefur gengið eftir. Hann er kominn aftur í atvinnu- mennsku og aftur í landsliðið. Það eitt að hafa verið á sínum tíma hjá Bayern München segir allt um þá hæfileika sem þarna eru undir niðri. Það er bara spurning um að ná í þá og hann hefur verið að ná í þá á réttan hátt og hefur tekið skref fyrir skref. Þegar hann fór til Lilleström var þar fyrir 21 árs landsliðsmarkvörður Norðmanna, Andre Hansen, sem er núna aðal- markvörður hjá Odd Grenland, og finnskur landsliðsmarkvörður sem spilar núna í rússnesku deildinni. Stefán sló þessa markmenn út,“ segir Guðmundur. „Hann á mörg ár eftir í toppstandi og það ætti að nýtast íslenska lands- liðinu. Mín skoðun er sú að Stefán á klárlega að vera númer eitt í þessu landsliði. Mér finnst hann hafa sýnt það í gær og hann átti líka góða inn- komu á móti Ísrael í nóvember. Stef- án er að verða betri og betri og hann sýndi það í Kýpurleiknum að hann er tilbúinn í meiri og stærri verk- efni,“ segir Guðmundur að lokum. ooj@frettabladid.is EINSTÖK BYRJUN STEFÁNS LOGA Stefán Logi Magnússon varð á laugardaginn fyrsti íslenski markvörðurinn til að verja víti og halda marki sínu hreinu í mótsleik og sá til þess öðrum fremur að karlalandsliðið fékk sitt fyrsta stig í undankeppni EM. STEFÁN LOGI OG GUÐMUNDUR Guðmundur Hreiðarsson hefur hjálpað Stefáni Loga Magnússyni að byggja upp feril sinn upp á nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þorsteinn Bjarnason á móti Sovétríkjunum á Laugardals- vellinum 3. september 1980 í undankeppni HM Ísland tapaði leiknum 1-2 Friðrik Friðriksson á móti Tyrklandi í Istanbul 12. október 1988 í undan- keppni HM Ísland gerði 1-1 jafntefli Birkir Kristinsson á móti Tékklandi í Teplice 7. október 2000 í undankeppni HM Ísland tapaði leiknum 0-4 Kjartan Sturluson á móti Skotum á Laugar- dalsvellinum 10. september 2008 í undankeppni HM Ísland tapaði leiknum 1-2 Stefán Logi Magnússon á móti Kýpur á Larnaca 10. september 2008 í undan- keppni HM Ísland tapaði leiknum 1-2 Stefán Logi Magnússon var að spila fyrsta landsleik sinn eftir að hann lét laga hjá sér sjónskekkju á öðru auga. Aðgerðin var meðal annars tekin fyrir og sýnd í norska sjónvarpinu. Guðmundur Hreiðarsson er sannfærður um að betri sjón eigi sinn þátt í frammistöðu Stefáns Loga á Kýpur um helgina. „Stefán Logi fór í mikla augnaðgerð eftir síðasta tímabil. Hann var þá með mikla sjónskekkju á öðru auganu sem hafði háð honum lengi. Hann var með linsur þar sem hann var með mis- munandi styrk á milli augna. Það hefur hjálpað honum mikið að láta laga þetta því þú getur ímyndað þér markmann sem er ekki með alveg hundrað prósent sjón á öðru auga. Nú er komið jafn- vægi á þetta og allt þetta telur og hjálpar honum að sýna sinn eðlilega styrk, sem ég tel hann vera að gera,“ segir Guðmundur. Stefán Logi fór í augnaðgerð í vetur Markverðir sem hafa varið víti í mótsleik

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.