Fréttablaðið - 28.03.2011, Qupperneq 6
28. mars 2011 MÁNUDAGUR6
Hafðu samband. Við hjálpum þér að velja rétta kortið.
MASTERCARD
KREDITKORTUM
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF
LEITAÐU TIL OKKAR
– VIÐ ERUM SÉRFRÆÐINGARNIR
kreditkort.is | Ármúla 28
ÁFRAM er hreyfi ng einstaklinga sem telja hagsmunum Íslands best borgið með
því að Icesave-lög Alþingis (lög nr. 13/2011) haldi gildi sínu. Auglýsingar og
annað starf hreyfi ngarinnar eru greidd með frjálsum framlögum og vinnuframlagi
sjálfboðaliða. ÁFRAM - Laugavegi 3 - 101 Reykjavík - afram@afram.is
Ég tel…ólíklegt að
við
mundum vinna dóm
smál
vegna Icesave. … Þ
að
er því heildarmat m
itt
að ekki sé rétt að h
afna
og segja nei við þe
ssum
samningi.
„
“
Siv Friðleifsdóttir, a
lþingismaður
Alþingi 16. febrúar
2011
www.afram.is
Já er leiðin áfram!
SUÐUR-KÓREA, AP Rauði kross-
inn segir að stjórnvöld í Suður-
Kóreu hafi samþykkt að senda 27
Norður-Kóreubúa aftur til síns
heima. Staða 31 Norður-Kóreubúa
hafði verið óljós í um mánuð eftir
að bát þeirra rak upp að ströndum
Suður-Kóreu í byrjun febrúar.
Stjórnvöld óskuðu eftir skip-
verjarnir yrðu sendir aftur til
Norður-Kóreu.
Suður-Kórea hefur tekið við
yfir tuttugu þúsund Norður-
Kóreubúum sem flúið hafa land
frá 1953. - mmf
Staðan í Norður-Kóreu er ljós:
Skipverjar fá að
fara aftur heim
ÞÝSKALAND, AP „Við höfum tryggt
okkur sögulegan kosningasigur,“
sagði Winfried Kretschmann, leið-
togi Græningja í þýska sambands-
landinu Baden-Württemberg, í
gær.
Útgönguspár sýndu að Græn-
ingjar hafa tvöfaldað fylgi sitt og
fengu 24 prósent atkvæða í kosn-
ingunum. Sósíaldemókratar töp-
uðu nokkru fylgi, en fengu þó rúm
23 atkvæða, sem gerir þessum
tveimur vinstriflokkum kleift að
mynda landsstjórn.
Kristilegir demókratar hafa
verið við völd samfleytt í Baden-
Württemberg í nærri sextíu ár.
Ósigur flokksins nú er því mikið
áfall, einnig fyrir Angelu Merkel,
kanslara Þýskalands, sem er leið-
togi flokksins á landsvísu.
Græningjar þakka sigur sinn
að verulegu leyti almennri and-
stöðu Þjóðverja við kjarnorkuver.
Sú andstaða hefur magnast mjög
í kjölfar hamfaranna í Japan og
vandræðin í kjarnorkuverinu í
Fukushima.
Merkel kanslari hefur þó ákveðið
að standa við áform um að allri
kjarnorkuvinnslu í landinu verði
hætt innan tveggja áratuga. - gb
Kristilegir demókratar missa meirihluta í sambandslandinu Baden-Württemberg:
Áfall fyrir hægristjórn Merkel
GRÆNINGJAR FAGNA Fyrstu útgöngu-
spár sýndu sigur vinstriflokkanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Var rétt hjá Alþingi að setja á
fót stjórnlagaráðið sem sam-
þykkt var?
Já 39,9%
Nei 60,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er vorið komið?
Segðu þína skoðun á visir.is
JAPAN, AP „Við getum ekkert sagt sem stendur um
það hve marga mánuði eða hve mörg ár það mun
taka,“ sagði Sakae Muto, aðstoðarforstjóri orku-
fyrirtækisins TEPCO, sem rekur kjarnorkuverið í
Fukushima, spurður hvenær búið yrði að hreinsa
kjarnorkuverið svo engin hætta stafaði af geisla-
mengun þar.
Geislavirkni mælist í vatni í fjórum kjarnaofnum
versins, sums staðar langt yfir hættumörkum.
Mengunin hefur borist um nágrennið, en um sjö
hundruð manns vinna nú að því að halda mengun-
inni í lágmarki. Sú vinna hefur gengið hægt og
erfið lega.
Í gær fullyrti orkufyrirtækið TEPCP, sem rekur
kjarnorkuverið í Fukushima, að geislavirkni í vatni
eins kjarnaofnsins hefði mælst tíu milljón sinnum
meiri en eðlilegt þykir. Fáeinum klukkustundum
síðar baðst fyrirtækið afsökunar og sagði þetta
rangar tölur: geislavirknin hafi í raun mælst hundr-
að þúsund sinnum meiri en venjulega, sem engu að
síður er mjög hátt.
Jarðskjálftinn 11 mars mældist 9 stig og hratt af
stað allt að tíu metra hárri flóðbylgju. Hamfarirnar
hafa kostað meira en tíu þúsund manns lífið, sem
vitað er um, en að auki er meira en sextán þúsund
manns saknað. - gb
Mikil geislavirkni hefur mælst í lofti og vatni í kjarnorkuverinu í Fukushima:
Hreinsun tekur mánuði eða ár
MÓTMÆLI Í TÓKÝÓ Hópur fólks lét í sér heyra í gær fyrir utan
höfuðstöðvar fyrirtækisins TEPCP í Tókýó, sem rekur kjarnorku-
verið í Fukushima. NORDICPHOTOS/AFP
KJARAMÁL „Við stefnum að því að
ljúka gerð kjarasamninga í næstu
viku. Þess vegna er orðið mjög
brýnt að það fari að sjást í ákvarð-
anir frá stjórnvöldum,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson, forseti Alþýðusam-
bands Íslands.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, tekur undir með Gylfa
hvað snertir aðkomu stjórn-
valda. Báðir nefna þeir
þar fyrst aðgerðir og fjár-
festingar í atvinnumálum.
Einnig breytingar á lífeyris-
sjóðakerfi opinberra starfs-
manna. „Tryggingafræði-
legur halli á lífeyrissjóðum
opinberra starfsmanna var
um fimm hundruð millj-
arðar króna í árslok 2009.
Og þetta gat er alltaf að
stækka. Við viljum sjá því
lokað,“ segir Vilhjálmur.
SA hefur boðið launa-
hækkun upp á 7 til 8 pró-
sent á þremur árum. „Við
höfum algerlega hafnað
því. Að sama skapi er
alveg ljóst að svigrúm-
ið til mikilla breytinga
er þröngt,“ segir Gylfi.
„Atvinnurekendur hafa
viljað fá meiri vissu
fyrir auknum fram-
kvæmdum og umsvif-
um í hagkerfinu. Eina
leiðin sem þeir hafa til að borga
reikninginn er að auka umsvifin.“
Spurður um launahækkanir
segir Vilhjálmur ekki standa til
að gera verðbólgusamninga. „Eftir
því sem tölurnar eru lægri, þess
líklegra er að við séum að tala um
kaupmáttaraukningu,“ segir hann.
Samkomulag er um að launa-
hækkanir sem um semst gildi
aftur virkt frá 1. mars. Gylfi segir
að greidd verði eingreiðsla sem
nemi launahækkuninni fyrir mars,
apríl og maí. „Samningurinn öðl-
ast ekki gildi fyrr en um miðjan
júní og þá að undangengnu því að
Alþingi og stjórnvöld séu búin að
efna það sem að þeim snýr. Það
hefur verið ljóst að erfiðasti hjalli
þessara viðræðna væri með hvaða
hætti aðkoma stjórnvalda yrði,“
segir hann.
Vilhjálmur segir að nú verði
hert á vinnunni. „Markmiðið núna
er að klára þetta fyrir næstu
helgi. Sumt er að ganga,
annað gengur hægar og
sumt hreyfist ekki,“ segir
hann.
Af hálfu SA hefur
verið sett fram krafa
fyrir gerð kjarasamn-
ings að samtökin fái
aðkomu að gerð
væntanlegs frum-
varps um breyt-
ingar á lögum um
stjórn fiskveiða.
Gylfi segir sjómenn
og landverkafólk
innan ASÍ einnig gera
kröfu um að fá að koma að
mótun sjávarútvegsstefn-
unnar þótt SA og ASÍ séu sam-
mála um fátt í þessum efnum.
„Þessi mál eru ekki að
hreyfast og við getum ekki
unað því,“ segir Vilhjálmur,
sem játar því að strandað
geti á fiskveiðistjórnun-
armálinu. „Það er alveg
eins líklegt,“ svarar
framkvæmdastjóri SA.
gar@frettabladid.is
Vilja kjarasamninga
klára í lok vikunnar
Forsvarsmenn SA og ASÍ vilja að ríkisstjórnin sýni lit svo ljúka megi kjarasamn-
ingum um næstu helgi. Aðeins lágar kauphækkanir leiða til aukningar kaup-
máttar segir framkvæmdastjóri SA. Strandað geti á fiskveiðistjórnunarmálum.
GYLFI ARNBJÖRNSSON OG
VILHJÁLMUR EGILSSON Stefna að því
að ljúka kjarasamningum um næstu
helgi. Krafa atvinnurekenda varðandi
fiskveiðistjórnun og skortur á yfir-
lýsingum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir
til að örva hagkerfið er meðal þess sem
stendur í vegi.
KJÖRKASSINN