Fréttablaðið - 28.03.2011, Síða 8
28. mars 2011 MÁNUDAGUR8
FÓLK „Ég fann að mig langaði að
prófa að skrifa bók fyrir börn en
spurning sonar míns, sem ég gat
ekki svarað, varð kveikjan að sög-
unni,“ segir Guðmundur Sverrir
Þór, doktorsnemi í hagfræði og
höfundur nýrrar barnabókar,
Sjandri og úfurinn, sem kom út
um miðjan marsmánuð.
Guðmundur er doktors -
nemi í hagfræði við sænska
landbúnaðar háskólann í Uppsöl-
um og starfar sem blaðamaður á
Viðskiptablaðinu meðfram nám.
Hann segist jafnvel sjá fyrir sér
að skrifa jöfnum höndum um hag-
fræði og sögur fyrir börn á næst-
unni. Barnabókin, sem er hans
fyrsta, verði líklega ekki sú síð-
asta.
„Ég er með aðra bók í smíðum
þar sem sögupersónan verður
áfram hinn fróðleiksfúsi gamli
Sigurjón Andri, eða Sjandri.
Hann spyr spurninga sem í
fyrstu líta út fyrir að vera auð-
svarað en það kemur svo á dag-
inn að svörin liggja ekki í augum
uppi. Sjálfur keppti ég í liði míns
gamla menntaskóla í spurninga-
keppninni Gettu betur og það
ergði mig svolítið að hafa ekki
svar á reiðum höndum við ein-
faldri spurningu sonar míns –
til hvers úfur væri. Leit mín að
svarinu varð til þess að mér datt
í hug að skrifa barnasögu þann-
ig að það má segja að sonur minn
hafi veitt mér innblástur.“
Bókina skrifaði Guðmund-
ur árið 2007 en gaf hana ekki út
strax, þar sem leit að myndskreyti
fyrir söguna varð lengri en hann
hélt.
„Það endaði á því að fyrrver-
andi vinnufélagi minn, Andrés
Andrésson, gerði teikningar sem
pössuðu vel við söguna og þá lá
beint við að koma henni út. Jú,
ég hugsa að það sé óvenjulegt að
hagfræðingar skrifi barnabækur
en ég hef aldrei séð annað fyrir
mér en að starfa við skriftir, og
þá alveg eins bókaskrif eins og
blaðaskriftir.“ juliam@frettabladid.is
Jú, ég hugsa að það
sé óvenjulegt að hag-
fræðingar skrifi barnabækur
en ég hef aldrei séð annað
fyrir mér en að starfa við
skriftir.
GUÐMUNDUR SVERRIR ÞÓR
SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS
LAUGAVEGI 114
150 REYKJAVÍK
Sjúkratryggingum Íslands hefur verið falið að
endurgreiða kostnað sjúkratryggðra sem dvöldu
á sjúkrahótelinu Lind á tímabilinu 15. september
2005 til og með 30. september 2009.
Teljir þú þig eiga rétt á endurgreiðslu vegna
dvalar á sjúkrahótelinu á þessu tímabili hvetjum
við þig til að senda rafræna umsókn þess efnis,
sem finna má á vef stofnunarinnar
www.sjukra.is, eða hafa samband við þjónustu-
miðstöð í síma 515-0000.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2011.
Átt þú rétt á endur-
greiðslu vegna dvalar
á sjúkrahóteli?
www.sjukra.is
Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu!
Faxafeni 14 www.heilsuborg.is
16-25 ára -
Ofþyngd / Offita
Heilsulausn 1 - Hentar ungu fólki, 16-25 ára, sem glímir við
ofþyngd, offitu og/eða einkenni frá stoðkerfi
Stelpur: Þri og fös kl: 16.30
Strákar: Þri og fös kl: 17.30
Átta vikur – takmarkaður fjöldi
Hefst 4. apríl – Kynningarverð kr. 44.000
Að námskeiðinu standa íþróttafræðingur, hjúkrunarfræðing ur,
næringarfræðingur og sálfræðingar! Skráðu þig núna í síma
560 1010 eða á heilsuborg@heilsuborg.is
ÞJÓÐMÁL Stuðningsmenn þess að
Icesave-lögin verði samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslunni í næsta
mánuði hafa myndað baráttuhóp
sem þeir kalla Áfram-hópinn.
Að sögn forsvarsmanna er hópur-
inn skipaður fólki af öllum stigum
samfélagsins sem á það sammerkt
að telja að þótt kostnaður geti hlot-
ist af Icesave-samningnum sé hann
léttvægur í samanburði við ávinn-
inginn sem hljótist af því að koma
atvinnulífinu af stað. Lykillinn að
því sé að ljúka Icesave-málinu.
Björn Brynjúlfur Björnsson, tals-
maður hópsins, segir í samtali við
Fréttablaðið að mestu skipti að fólk
kynni sér málið vel og taki ígrund-
aða afstöðu í framhaldinu.
„Það er okkar trú að þeir sem fari
vel ofan í málið muni frekar segja
já.“
Björn segir hópinn hafa fengið
mjög góð viðbrögð frá því að þau
komu fram.
„Það er eins og hafi opnast flóð-
gátt og fólk er ánægt með þetta
átak. Svo sýnir líka könnun Capa-
cent að nú er að draga aftur í sund-
ur með fylkingum og fylgi við
samninginn meðal almennings er
að aukast.“
Björn segir að á næstunni muni
hópurinn leggja mest upp úr að
ræða við fólk um málið og taka
þátt í umræðunni. - þj
Fylgismenn samþykktar Icesave-laga mynda Áfram-hópinn:
Skiptir mestu að kynna sér málið
1 Hver hefur yfirumsjón með
klæðaburði Vina Sjonna í
Eurovison?
2 Hver vann keppnina Fyndnasti
Verzlingurinn á dögunum?
3 Elizabeth Taylor vann til tvennra
Óskarsverðlauna. Fyrir hlutverk í
hvaða myndum?
SVÖR
Hagfræðingur
svarar syni í
bók fyrir börn
Guðmundur Sverrir Þór, doktorsnemi í hagfræði, er
höfundur nýrrar barnabókar, Sjandri og úfurinn,
sem kom út fyrir nokkrum vikum. Önnur bók um
Sjandra litla er í smíðum hjá hagfræðingnum.
SEGJA JÁ Áfram-hópurinn er myndaður
af fólki sem telur Íslandi best borgið
með því að samþykkja Icesave-lögin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Ragna Sigurjónsdóttir 2. Margrét
Björnsdóttir 3. Myndirnar eru Butterfield
8 og Who´s is afraid of virginia woolf?
Peningakassa stolið
Brotist var inn á verkstæði á Flöt-
unum í Garðabæ um hádegisbilið
í gær. Peningakassa með hundrað
þúsund krónum var stolið. Þjófurinn
komst inn á verkstæðið um glugga á
hlið hússins. Málið er í rannsókn hjá
lögreglu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Range Rover brann
Range Rover jeppi brann til kaldra
kola í Hveragerði um klukkan sex í
gærmorgun. Eldsupptök eru ókunn
en bíllinn er gjörónýtur. Málið er í
rannsókn hjá lögreglu.
Unglingar sendir heim
Í kringum tuttugu unglingum var
vísað út af skemmtistaðnum Re-Play
á laugardagskvöld. Þeir reyndust allir
vera undir lögaldri. Að auki hafði lög-
reglan afskipti af tveimur minniháttar
líkamsárásum, annarri í miðbænum
og hinni í Grafarvogi.
FEÐGAR LESA SAMAN Guðmundur Sverrir Þór ásamt syni sínum Jóni Þórarni. Guð-
mundur Sverrir sendi nýlega frá sér barnabókina Sjandri og úfurinn.
SAN FRANCISCO, AP Hinn 43 ára
Maurice Caldwell, sem setið hefur
í fangelsi í Kaliforníu í 21 ár, hefur
verið látinn laus. Sakfellingardómi
hans var snúið við á síðasta ári.
Saksóknarar vildu láta rétta yfir
Caldwell aftur en dómari úrskurð-
aði á föstudag að hann skyldi
látinn laus þar sem sönnunargögn-
um hefði verið eytt. Dómari árétt-
aði að Caldwell skyldi njóta rétt-
látrar málsmeðferðar. Caldwell
var sakfellwdur fyrir morð á Judy
Acosta og fjölskylda hennar trúir
enn að Caldwell sé sekur. - mmf
Sakfellingardómi snúið við:
Sat saklaus í
fangelsi í 21 ár
VEISTU SVARIÐ?