Fréttablaðið - 28.03.2011, Side 19
FASTEIGNIR.IS
13. TBL.
Fasteignamarkaðurinn ehf.
hefur til sölu fallegt, vandað og
vel skipulagt parhús á tveimur
hæðum í Vættaborgum í
Grafarvogi.
H úsið er 174 fm að stærð á tveimur hæðum með inn-byggðum 27,4 fm bílskúr,
og stendur á fallegum útsýnisstað.
Forstofa er flísalögð og með fata-
skápum en þaðan er innangengt í
bílskúr. Holið er parkettlagt og
gestasalerni flísalagt. Eldhúsið er
stórt, flísalagt og með góðri borð-
aðstöðu. Innréttingar eru úr kirsu-
berjaviði með flísum milli skápa.
Stofur er tvær, parkettlagðar
og með útgengi á verönd, þaðan
er fallegt útsýni út á sjóinn og að
Eskjunni.
Á efri hæð er komið á stiga-
pall með útgengi á stórar svalir
til austurs. Fallegur þakgluggi er
yfir stiganum milli hæða, en stig-
inn sjálfur er steyptur og parkett-
lagður með fallegu handriði úr
burstuðu stáli.
Tvö barnaherbergi eru á efri
hæð, parkettlögð, rúmgóð og fata-
skápur í öðru þeirra. Hjónaher-
bergið er stórt, parkettlagt og
með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi er flísalagt í gólf og
veggi með góðum gluggum. Þar er
bæði bað og sturta og tengi fyrir
þvottavél og þurrkara.
Bílskúrinn er flísalagður með
sjálfvirkum hurðaopnara. Hiti og
rennandi heitt og kalt vatn er í bíl-
skúr auk geymsluaðstöðu.
Húsið er í góðu ástandi og lóð
frágengin. Tvær verandir eru við
húsið og sú er vísar til suðurs er
með skjólveggjum og fallegum
gróðri. Hiti er í innkeyrslu.
Seljendur skoða skipti á 3ja her-
bergja íbúð á svipuðum slóðum.
Með útsýni til Esjunnar
Parhúsið er á tveimur hæðum, 174 fm með innbyggðum 24,7 fm bílskúr.
...kynnir með stolti nýja starfsmenn!
Sveinn Eyland Garðarsson
Kristberg hefur 11 ára reynslu af
fasteignasölu, m.a. sem sölustjóri á
Hóli. sími 892 1931
kristberg@landmark.is
Sveinn hefur áralanga reynslu af
fasteignasölu og hefur lokið námi til
löggildingar fasteignasala.
sími 690 0820, sveinn@landmark.is
Eggert kemur úr körfuboltanum og
veit að góður liðsandi skiptir öllu
máli. Eggert var sölumaður hjá
DHL í 6 ár.
sími 690 1472, eggert@landmark.is
Kristberg Snjólfsson
Eggert Maríuson
Sími: 512 4900
28. MARS 2011
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.